Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 87
Meðferð opinberra mála
161
komið hefur rannsókn gegn honum af stað, heldur fram-
f erSi hans í sambandi viS sjálfa rannsóknina. Dæmin, sem
nefnd eru í 1. tölul. 150. gr. sýna þetta, enda hefur ekki
verið tilætlunin að raska neitt þeim skilningi, sem leggja
varð í samsvarandi ákvæði 8. gr. laga nr. 28/1893. Hátt-
semi sökunautar í rannsókn málsins firrir hann ekki bóta-
i'étti, nema hún sé vísvitandi eða stórvægilega ólögmæt, t.
d. vísvitandi röng sjálfsákæra, vífilengjur í svörum og
niótsagnir, sem vitanlega torvelda oft rannsóknir og mega
því með öðru fleiru verða því valdandi, að aðili verði úr-
skurðaður í gæzluvarðhald. Hins vegar firrir ónákvæmni,
sem ekki verður ætluð viljandi, fát, hræðsla o. þ. h. söku-
naut ekki bótarétti, enda þótt allt slíkt geti torveldað rann-
sókn.
b. Að rannsókn hafi lokið án ákæru, vegna þess að verkn-
aður sá, sem sökunautur var borinn, sé ósaknæmur eða
ósannaður á hann, eða ákæra hafi leitt til óáfrýjaðs eða
óáfrýjanlegs sýknudóms af sömu ástæðum, enda megi
fi'emur telja sökunaut líklegan til að vei’a sýknan en sek-
an. Ef sannað þykir, að ákærði hafi unnið refsivert verk,
þá á hann hins vegar almennt ekki bótarétt, enda þótt refs-
ing hafi verið felld niður eða sýknað hafi verið sakir sak-
hæfisskorts eða ákærði hafi verið dæmdur til gæzlu, sbr.
62. gr. hegnl.
Stundum glatast bótaréttur ekki, þó að þau skilyrði
skorti, sem talin eru í 1. og 2. tölul. 150. gr. Þó að aðili hafi
valdið gæzluvarðhaldi með óhæfilegu framferði í rann-
sókn máls eða jafnvel verið dæmdur sekur, þá hefur hann
samt venjulega ekki fyrirgert bótarétti sínum, ef bannað
ev að beita hann gæzluvarðhaldi samkvæmt 1.—3. tölul. 69.
og einnig samkvæmt 4. tölul., ef dómara verður talið
til gáleysis eða ásetnings að láta þar greinda aðilja sæta
varðhaldi, sem ekki samrýmist heilsu þeirra eða líkams-
högum.
En auk þessara tilvika sýnist aðili geta átt bótarétt,
þótt ekki sé fullnægt inum nefndu skilyrðum 1. og 2. tölul.
!50. gi'. Með aðgerðum samkvæmt 151. og 152. gr. má vera