Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 10
84
Tímarit lögfræðinga
er nú veitt heimild til þess að ákveða, að fengnum tillögum
dómara, sakadóm í kaupstöðum og kauptúnum ákveðna
vikudaga á ákveðinni klukkustund, ef mál eru þá fyrir
hendi, 17. gr. En auðvitað getur dómara verið bæði rétt
og skylt að heyja dómþing utan þess staðar og á öðrum
tíma. Sérstaklega tekur þetta auðvitað til rannsóknar opin-
berra mála.
Almenningur á nú engan aðgang að rannsókn opinberra
mála, hvort sem hún fer fram fyrir lögreglumanni eða
dómi. Sama er um málsmeðferð fyrir dómi í héraði eftir
málshöfðun, enda gerist þar venjulega ekkert annað en
framlagning málsskjala af hendi dómara og framlagning
varnar, ef verjandi hefur verið skipaður. Fyrir hæstarétti
fer flutningur opinberra mála hins vegar venjulega fram
í heyranda hljóði og fyrir opnum dyrum, þegar mál er
munnlega flutt, sem nú má heita undantekningarlítið.
Rannsókn fyrir lögreglumanni er og hlýtur að vera áheyr-
endalaus, að undanteknum votti þeim, sem við yfirheyrslu
lögreglumanns skal vera samkvæmt 37. gr. Lögreglumaður
byrjar oft rannsókn og sums staðar, svo sem hér í Reykja-
vík, langoftast, og er einsætt, að mjög geti verið hættu-
legt að hleypa þar fleirum mönnum að en sökunaut og
þeim öðrum, sem vert þykir að spyrja, enda ber slíka
rannsókn venjulega svo bráðan að, að almenningur hefur
ekki hugmynd um, hvað um er að vera.
Þó að lögreglumenn hafi byrjað rannsókn og þar á meðal
tekið skýrslur af þeim, sem við mál koma eða ætla má,
að geri það, þá fer höfuðrannsókn hvers máls framvegis,
sem hingað til, fram fyrir dómi. 1 16. gr. er sú megin-
regla orðuð, að slík rannsókn skuli vera opinber, þ. e. í
heyranda hljó’ði. En þessi regla hlýtur að sæta mjög veiga-
miklum undantekningum. Væri oft jafn fráleitt að hafa
rannsókn fyrir dómi opinbera og það væri að hafa rann-
sókn fyrir lögreglumanni með þeim hætti. Samsekir menn
og aðrir þeir, sem ekki vilja, að sannleikurinn komi í
ljós, gætu með mörgum hætti misbrúkað návist sína á rann-
sóknarþingi. Og sú misbrúkun getur auðveldlega valdið