Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 62
136
Tímarit lögfrætíinga
lyktunum, sem þar af kunna að vera dregnar, verður dóm-
ari að meta alveg sjálfstætt, eftir því sem hann, ef til vill
með aðstoð kunnáttumanna, getur. Dómari verður almennt
bundinn við mat á fjárhæðum í opinberu máli, nema það
sé reist á skökkum grundvelli eða ekki framkvæmt annars
með réttri aðferð.
Yfir höfuð er dómari nú allfrjáls um mat á sönnunar-
gildi allra gagna, beinna og óbeinna. Ef honum finnast, að
skynsamleg rök verði færð fyrir véfengingu þeirrar sönn-
unar, sem fengizt hefur, þá á hann að sýkna sökunaut.
Sérstaklega á þetta við um óbeina sönnun. Þar verður
jafnan að athuga þann möguleika, að ályktun sú, sem
hann eða aðrir hafa leitt af tilteknum staðreyndum, kunni
að vera röng, og hvort ekki kunni að vera önnur skýring
tiltækileg. Tvísögli eða margsögli vitna eða sökunautar
getur einnig verið óbein sönnun þess, að ekki sé mark tak-
andi í framburði þeirra. Maður, sem kunnur er dómara að
glæpum og ósannsögli, veitir litla sönnun með framburði
sínum. Og álitsgerð kunnáttumanna, sem ekki sýnast koma
auga á nema það eitt, sem sökunaut er í óhag, enda þótt
álit annarra jafnlærðra manna eða hæfari fari í aðra átt,
er ekki mikils virði, enda fráleitt, að dómari telji sig
bundinn við hana.
Þess skal loks geta, að dómari á að sjálfsögðu að leið-
beina vitnum og öðrum um þau atriði, sem máli skipta,
sbr. 96. og 103. gr., og kynna sökunaut, og að sjálfsögðu
líka verjanda hans, efni allra þeirra skjala, er varða gögn
í opinberu máli, þegar er honum þykir það mega verða án
hættu á því, að vitneskjan kunni að verða notuð til að seinka
eða torvelda rannsókn máls, og allt af skal gera það, áður
en rannsókn lýkur, 78. gr. Rannsókn lýkur venjulega áður
en málshöfðun er ráðin, og skal því í síðasta lagi kynna
sökunaut efni þess, sem fram hefur komið og sekt eða
sýknu hans varðar, áður en það er gert. En ekki er kynn-
ing skjala fyrir sökunaut nægileg. Hann á auðvitað að fá
færi á því að gera þær athugasemdir við efni skjala, sem
honum þykir sér nauðsynlegar eða heppilegar. Eftir at-