Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 29
Mcðfcrð opinbcrra mála
103
un þyki nauðsynleg. En sjálfsagt ber að fara varlega í
þessu efni. Sérstakur maður eða sérstakir menn verða að
vera grunaðir hér, en með því að öryggi ríkisins er hér
ekki beinlínis í húfi, þá sýnist verða að gera meiri kröfur
um grun á hendur sökunaut en þar.
Úrskurður um símahlustanir verða að beinast að alveg
tilteknum manni eða mönnum, en t. d. ekki að einhverri
stétt manna, t. d. lögreglumönnum, starfsmönnum stofn-
unar eða fyrirtækis almennt eða félögum einhvers stjórn-
málaflolcks, sem svo yrðu ákveðnir eftir því sem efni þættu
standa til.
VIII. Um leit.
Áður er talað um leit muna, sem hald skal á Iðggja
og ekki þarf dómsúrskurðar til, og kyrrsetning bréfa o.
s. frv. I VII. kafla laganna ræðir um leit í húsum, geymslu-
stöðum, hirzlum, skipum og öðrum farartækjum söku-
nauta að munum, sem hald skal á leggja, eða annars til
öflunar sakargagna, og leit hjá öðrum, þar sem maður
hefur verið handtekinn eða gild ástæða er til að ætla, að
þar finnist munir, sem hald ber að leggja á eða önnur
sakargögn. Slík leit er fyrst og fremst háð dómsúrskurði
samkvæmt 66. gr. stjskr. og 51. gr. laganna. En skilyrði
til uppkvaðningar slíks úrskurðar er það, að brot geti
varðað 20000 kr., ef um sekt er eingöngu að tefla, en in
concreto má lægri sekt verða dæmd. Ef bæði er um sekt
°g upptöku eignar að véla, þá er þessa sektarhámarks ekki
krafizt, né heldur er krafizt lágmarks verðmætis þess,
sem gert kann að verða upptækt. Þessara skilyrða þarf
þó ekki til leitar.
a. I húsakynnum, sem eru opin almenningi. Hér er átt
við veitingahús, sölubúðir, söfn og slík hús. Leit án dóms-
úrskurðar utan þeirra herbergja, sem almenningi eru opin,
verður vitanlega ekki gerð án slíks úrskurðar, t. d. ekki
í hótelherbergjum, skrifstofu kaupmanns o. s. frv. Hugs-
unin er sú, að lögreglunni sé fi*jálst að ganga inn í húsa-