Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 59
MeSferS opinberra mála
133
nafngreind í bókum, sbr. 5. málsgr. 102. gr., enda væri
nafn hennar því síður greint í dómi. Þegar svo stendur á,
að ætla má vitnisburð prests o. s. frv. ef til vill nauðsyn-
legan sökunaut til varnar, þá getur háttvísi og skarp-
skyggni dómara einkum skipt miklu máli, og sérstaklega,
þar sem ósakaður þriðji maður á hlut að máli, svo sem í
þessu dæmi.
Nú er mönnum almennt skylt að koma í veg fyrir framn-
ingu ýmissa stórbrota og, ef með þarf, skýra yfirvöldum,
þar á meðal lögreglustjóra, frá vitneskju sinni., sbr. 126.
°g 169. gr. hegnl., ef þeir mega gera það án þess að stofna
sér eða nánustu vandamönnum sínum í nánar tiltekna
hættu. Lágmarksrefsing fyrir ýmis þessara brota nemur
ekki tveggja ára refsivist, þó að sum þeirra varði minnst
slíkri refsingu. Ef nauðsynlegt reynist að vitni gefi skýrslu
fyrir dómi um slík fyrirhuguð stórbrot, þá hlýtur vitni að
eiga að gefa hana, þrátt fyrir ákvæði 94. gr.
3. Loks er dómara heimilt samkvæmt 95. gr. — en ekki
skylt — að undanþiggja vitni að svara spurningum, er
varða leyndarmál um kaupsýslu, uppgötvanir eða önnur
slík verk þriðja manns, sem vitnið hefur komizt að í þjón-
Ustu hans, enda telji dómari hagsmuni aðilja til leyndar
*'íkari en hagsmuni ríkisvaldsins um skýrslu. Ef þriðji
Wiaður leyfir vitnaleiðslu um þessi atriði, þá kemur auð-
vitað ekki til undanþágu. Annars má um þetta vísa til b. 4.
að framan.
C. Mats- og skoðanagerðir. Um þær gilda samkvæmt 105.
gr. ákvæði einkamálalaganna í 136.—144. gr. þeirra, eftir
bví sem við á, og með fáeinum breytingum. Aðgerðir þessar
toá framkvæma bæði að beiðni sækjanda og sökunautar
eða verjanda hans, en auk þess getur ákæruvaldið og dóm-
ari ex officio látið þær fram fara, eins og hingað til. Sjálf-
ur metur dómari og skoðar sakaratriði, með kunnáttu-
uiönnum eða án þeirra eftir atvikum. Hann á því að fara
á vettvang, skoða verksummerki á lausum munum eða
föstum o. s. frv. Dómari nefnir matsmenn og skoðunar,
leiðbeinir þeim og kveður á um staðfestingu gerða þeirra.