Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 17
MeöferS opinberra mála
91
er hann skráir í þingbók, enda vilji aðili láta þar við sitja.
Þetta má vitanlega því að eins gera, að brot sé mjög smá-
vægilegt, og venjulega mun þessi afgreiðsla naumast verða
höfð, nema brot sé fyrsta sinni framið.
Þá má ljúka máli með ákvörSun sektargreiöslu á hend-
ur sökunaut, enda sé brot skýlaust sannað, telja má, að
refsing muni ekki fara fram úr sektum, ef mál gengi til
dóms, og sökunautur undirgengst þessi málalok. Hér skipt-
ir ekki máli, þó að refsiboðið, sem við brotið á, heimili
hærri refsingu en sektir, ef refsilágmark þess nemur
sektum, svo framarlega sem dómur mundi in concreto
ekki nema hærri refsingu en sektum. Loks getur dómari
undir sama skilorði ákveðið upptöku eignar, ef lög mæla
slík viðurlög við því broti. Er þetta ákvæði 112. gr. nýtt.
Hér eru engin takmörk sett um verðmæti fjárins, sem
upptækt er gert. Ef sökunautur finnst ekki eða er ókunn-
u£ur, sem vel má vera, t. d. um tollsmygl, eiturlyf o. s.
H'v., þá getur dómari og gert verðmæti upptæk, en verð-
niæti má þá ekki fara fram úr 3000 kr.
Við hefur borið, að dómari hafi flaskað á meðferð sam-
svarandi sektargreiðslu fyrir verknað, sem alls ekki var
l'efsiverður að lögum, eða sleppt sökunaut með sektar-
greiðslu, þó að lágmarksrefsing fyrir brot hans næmi
Þyngri refsingu. 1 3. mgr. 112. gr. er nýmæli, sem gerir
dómsmálaráðherra rétt og skylt að hlutast til um leið-
i'ettingu á slíkum glöpum, hvort sem þau eru fólgin í
akvörðun sektargreiðslu fyrir ósaknæman verknað, ólög-
^e&i'i eignarupptöku eða fjarstæðum málalokum annars,
SVo sem óhæfilega lágri eða óhæfilega hárri sekt, eða mál
skyldi eftir lögum eða eðli sínu hafa átt að ganga til dóms,
h d. nauðgunarmál, mál út af skjalafalsi o. s. frv. Getur
dómsmálaráðherra þá kært mál til hæstaréttar til ónýting-
ai' gerðum dómarans. Hæstiréttur mundi þá, ef efni standa
Hl, ómerkja ákvörðun dómarans.
h. I 4. málsgr. 112. gr. er algert nýmæli. Samkvæmt
henni getur lögreglumaður, sem stendur vegfaranda að
hroti á „umferöalögum, bifreiöalögum eöa lögreglusam-