Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 91
MeHferð opinberra mála
165
bb. Dómur bindur, handhafa ríkisvalds og aðra aðilja
um atriði þau, sem þar eru dæmd, 1. málsgr. 168. gr. Ef
maður er sýkn dæmdur, verður ríkisvaldið að hlíta því.
Maðurinn verður t. d. ekki sviptur stöðu eða réttindum,
þó að ríkisvaldinu þyki dómur rangur. Hins vegar verður
sökunautur að hlíta ákvæðum dóms um refsingu og annað.
Sama er um aðra, sem aðiljar mega kallast, t. d. sakflytj-
andi, sem sektaður er í dómi o. s. frv. Hins vegar segir
ekki, að dómur bindi almenning.
Þó að dómur bindi sjálfsagt ekki almenning, frekar en
dómur í einkamálum, þá hefur hann ekki síður endurverk-
un á hagi þeirra. Ef hjónaband er ógilt með dómi í opin-
beru máli, t. d. vegna tvíkvænis eða vegna of náinnar
fi’ændsemi, þá verður hinn aðili þess, sem saklaus er tal-
mn og eigi hefur verið saksótur, að hlíta ógildingu.
c. Dómur í opinberu máli bindur aSilja neikvætt sam-
kvæmt 1. málsgr. 168. gr. eigi síður en dómur í einkamáli.
Krafa, sem dæmd hefur verið í opinberu máli, verður ekki
borin undir sama eða hliðsettan dómstól, 2. málsgr. 168.
£i\, sem vísar til 196. gr. laga nr. 85/1986. Þó að þriðji
niaður telji sér of lágar bætur dæmdar í héraðsdómi í opin-
beru máli, þá tjóar honum ekki að bera þá kröfu undir
nnnan dómstól en hæstarétt. Ef hins vegar annar maður
v®ri skaðabótaskyldur með sökunaut, en hann hefur ekki
yerið aðili opinbera málsins að því leyti, þá mundi dómur
1 því ekki binda hann né þriðja mann í því sambandi, og
8'seti hann gert hærri kröfu, og hinn krafizt sýknu eða dóms
nni lægri fjárhæð.
d. Dómur í opinberu máli hefur því næst sönnunargildi
u*n þau málsatvik, sem í honum greinir, 2. málsgr. 168.
Si\, sem vísar til 196. gr. laga nr. 85/1986. Sá, sem telur
staðreynd ranglega lýst í dómi eða að hún hafi ekki gerzt,
verður að sanna það, ef hann vill reisa réttarkröfu á því.
^að er t. d. talið sannað í dómi, að A hafi notað falskt skjal
til blekkingar í viðskiptum. 1 meiðyrðamáli, sem hann höfð-
ar á hendur B fyrir áburð um skjalafals, yrði A að sanna,