Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 52
126
Tímarit lögfræðinga
getið barn við dóttur B eða systur utan hjónabands, þá
kynni málið að vera vafasamara. Ber þó víst að virða
tengdirnar, ef faðerni barns er svo sannprófað sem áður
var sagt um ættingja í beina línu. Um systkin, hvort sem
eru alsystkin eða hálfsystkin, er ekki vafi, nema um ó-
skilgetið barn manns og önnur börn hans. Ef faðerni er
svo sannað sem sagt var, þá verður að meta þau sem
systkin séu, t. d. ef A hefur verið dæmdur faðir B, þá
verður að telja hann bróður annarra barna A.
Fósturböm og fósturforeldra má dómari undanþiggja,
ef samband virðist mjög náið, 1. mgr. 90. gr.
Þeir allir, sem í 1.—2. gr. hér að framan greinir, mega
bera, ef þeir vilja. En Ijóst virðist, að þá skuli ekki heit-
festa. Um sönnunargildi vitnisburðar þeirra verður vitan-
lega lítið almennt sagt. Þó má gera ráð fyrir því, að ekki
beri þeir venzlamanni sínum í óhag, nema þeir hyggi sig
satt segja. Vitanlega getur venzlamaður borið kala eða
ef til vill hatur til vandamanns síns, og má þá sönnunar-
gildi vitnisburðar miða nokkuð við það.
3. Embættis- og sýslunarmönnum er óskylt að koma fyrir
dóm til að vitna um atvik, sem hafa gerzt í embætti þeirra
eða sýslun, og leiða má í ljós með vottorði úr embættisbók
eða öðru opinberu skjali, 92. gr. Presti er t. d. almennt ó-
skylt að koma fyrir dóm til þess að vitna um hjónavígslu,
sem hann hefur framkvæmt, því að vottorð úr embættisbók
hans nægir. En ef leiða þarf í ljós ástand annars hvors
brúðhjóna, þegar hjónavígslan fór fram, af því að vafi
þykir á því leika, hvort það hefur gefið lögmætt sam-
þykki sitt til ráðahagsins, sbr. 35. og 36. gr. laga nr.
39/1921, þá mundi presti vera skylt að vitna um það at-
riði fyrir dómi.
Ef opinber starfsmaður ber vitni, má auðvitað láta
hann heitfesta framburð sinn, eins og vitni almennt.
Hver sá maður, sem hefur löggildingu stjórnvalds til
þess að framkvæma verk í þágu ríkis eða almennings,
verður hér að teljast til embættismanna og opinberra
starfsmanna. Hins vegar er það ekki nóg, þótt einhverj-