Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 75
MeBferð opinberra mála
149
lögmæltum refsiauka, muni ná lágmarki 1. tölul. 130. gr.
laga um meðferð opinberra mála. Refsihámark fyrir mann-
dráp af gáleysi er t. d. 6 ár samkvæmt 215. gr. hegnl.
Ef forseti Islands eða erlendur þjóðhöfðingi væri veginn
í gáleysi, gæti refsing að lögum orðið tvöföld, eða 12 ára
fangelsi samkvæmt 94. eða 101. gr. hegnl. Brot samkvæmt
1- málsgr. 130. gr. hegnl. getur varðað 6 ára fangelsi. Ef
æðra settur embættismaður kemur undirmanni sínum til
þess að fremja slíkt brot, þá má bæta við hann helmingi
þeirrar refsingar, sem við broti er lögð samkvæmt 1. máls-
gr. 130. gr. hegnl. Hámark refsingar hans gæti þá orðið
9 ára fangelsi.
Svipað getur orðið samkvæmt 2. málsgr. 77. gr. hegnl.,
er dæma skal mann í einu lagi fyrir mörg stórbrot. Þá
getur refsimark margfaldast með 1, 5. Sá, er dæma skal
bæði fyrir skjalafals og þjófnað gæti eftir 2. málsgr. 77.
Sr. hegnl. fengið yfir 8 ára fangelsisrefsingu.
Ef nú þessi tilvik verða ekki talin til 1. tölul. 130. gr.
laganna, þá mundu mál vegna þeirra þó eiga að sæta með-
fei'ð samkvæmt 130. gr., því að naumast yrði hjá því
komizt að telja þau til 2. tölul.
I sambandi við stórbrot geta önnur brot ákærða verið
dæmd, sbr. 77. gr. hegningarl., og aðrir menn verið sóttir,
þótt brot þeirra varði lægri refsingu en 1. töluk 130. gr.
Segir, t. d. brot aðalmanns eftir 2. mgr. 164. gr., en annars
bátttakanda eftir 167. gr. hegnl.
b. Þegar mál sætir ákæru dómara samkvæmt 113. gr.
sbr. 126. gr., kemur málsmeðferð eftir 130. gr. auðvitað
aldrei til greina. Hins vegar má vera, að dómari höfði
^ál samkvæmt 114. gr., þótt brot geti varðað refsingu
samkvæmt 1. töluh 130. gr., og ber þá að fara með það
samkvæmt ákvæðum 130.—137. gr. En líklegra er þó að
dómari láti dómsmálaráðherra um ákæru í slíkum mál-
um. Þegar mál er svo vaxið sem í 2. tölul. a., 130. gr. segir,
bá má vel verða, að dómari höfði mál samkvæmt 114. gr.,
°g verður þá ekki höfð á því meðferð samkvæmt 130. gr.,
beldur in almenna meðferð, sem lýst var í II. að framan.