Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 24
98
Tímarit lögfræöinga
raunar um kunnáttu sína og hæfileika til starfsins. Hefur
sakadómari umsjón með kennslu lögreglumanna um allt
það, er lýtur að rannsókn brota, 33. gr.
2. Vert er að minnast ákvæða 36. gr., þar sem lögreglu-
manni er boðið að varna til bráðabirgða þeim, sem í starfa
sínum hefur brotið öryggisreglur, sem um starfann eru
settar til þess að aðili megi rækja hann, svo sem með því
að taka af aðilja atvinnuskírteini hans, stöðva farartæki
hans, loka starfhýsi hans eða með öðrum viðeigandi hætti.
Maður, sem hefði opna sölubúð án verzlunarleyfis eða
veitingamaður, sem léti viðgangast áfengisnautn í veit-
ingastofu sinni eða bryti stöðugt heilnæmisreglur, getur
átt það á hættu, að lögreglumenn loki starfhýsi hans.
Bifreiðastjóri, sem brýtur stórkostlega umferðareglur
eða ekur ölvaður, á það á hættu, að lögreglumaður taki
af honum ökuskírteini hans. Sá, er ekur án ökuskírteinis,
getur orðið að sæta því, að bifreið hans verði af honum
tekin, o. s. frv. Að sjálfsögðu eru slíkar ráðstafanir ein-
ungis til bráðabirgða. Ráðstöfun lögreglumanns verður
að koma til úrlausnar dómara svo fljótt sem unnt er, og
dómari verður þá að skera úr því, hvort ráðstöfunin skuli
standa eða ekki. Það virðist sjálfsagt, að rannsóknar-
dómari kveði upp úrskurð um þetta atriði, því að hann
hefur alla jafna bezt skilyrði til þess að meta nauðsyn að-
gerða lögreglumanns. Sakadómari í Reykjavík ætti því
að kveða upp úrskurð um lögmæti lokunar á sölubúð eða
veitingastofu í Reykjavík. Þeim úrskurði mætti svo sjálf-
sagt skjóta til æðra dóms með kæru samkvæmt 10. tölu-
lið 172. gr.
3. Um yfirheyrslur lögreglumanns má minnast nokk-
urra nýmæla. Ávallt skal hann hafa við að minnsta kosti
einn greinagóðan og trúverðugan vott, ef þess er kostur,
37. gr. Stundum kann það ekki að vera unnt, t. d. ef lög-
reglumaður einn saman stöðvar bifreið með bifreiðastjóra
einum, en hefur ekki tækifæri til þess að fara með hann
þegar á lögreglustöð. Benda skal lögreglumaður þeim sök-
uðum manni, sem hann yfirheyrir, á það, að hohum sé