Búnaðarrit - 01.01.1902, Síða 41
37
Þar voru haldnar margar tölur, fiutt kvæði, ort af iunan-
sveitarmönnum, leikið, sungið, og danzað, reyndar iþróttir,
hlauj), stökk og glíinur. Eydalir eru stór og mikil jörð.
Túuið er víðáttumikið en þýft með köflum og ógirt- Það
getur tekið ósegjanlega miklum umbótum, ef það væri slétt-
að og girt, en það kostar mikið. Að Eydöluin er nú prest-
ur Þorsteinn Þórarinsson, valinkunnur sómamaður, euda
vinsæll mjög af sínum sóknarbörnum. Búinu stýrir sonur
hans, síra Pétur, sem er aðstoðarprestur föður síns. Þeir
feðgar tóku á móti mér með sinni alkuunu alúð og gestrisni.
Auk þeirra bæja, er nefndir hafa verið, kom eg að Höskulds-
stöðum og Þorgrímsstöðum. Á þeim jörðum báðum er búið
vel. Túnið á Höskuldsstöðum er eitthvert hið fallegasta,
sem eg hefi séð, bæði slótt og vel hirt. Iun í Breiðdaluum
er stór mýrarfláki, er nefnist Skriðublá, og tilheyrir hún
6—8 jörðum þar i dalnum. Skriðublá er blaut en allvel
grasgefin með pörtum. Það er eigi ólíklegt, að þá er fram
líða stundir, verði heuni meiri gaumur gefinn en nú er. —
En til þess að hafa nokkuð gott af „blánni“, þarf að ræsa
liana fram og veita á haua vatni. Vatui er auðvelt að ná
á hana úr Skriðuá, en betra væri þó að geta notað vatnið
úr Breiðdalsá. En það er bundið æði miklum erfiðleik-
um og meiri kostuaði en að taka vatn úr Skriðuá. Eftir
]>ví. sem eg leit til, virtist mér þó mega ná vatni til áveitu
á „bláua“ úr Breiðdalsá, eu til þess þarf skurð og hann
töluvert langann. Hve vatnið næðist yfir stórt svæði, verð-
ur eigi sagt um fyr en það er mælt, og eigi heldur hitt,
hverju kostuaðurinn mundi nema við þessa vatnsveiting.
Búskapur og velmegun yfir liöfuð er heldur góð um
Breiðdal. Húsakynui eru víða lagleg, umgeugni snotur og
þrifnaður í betra lagi. Breiðdælingar eru viðfelduir og gest-
risnir, euda auðkenna þessir kostir Múlsýslunga yfir höfuð
og vart muuu aðrir taka þeim fram í því efni.
Úr Breiðdalnum fór eg upp i Skriðdal. Þar kom eg að
Víðilæk, Þingmúla og Þorvaldsstöðum. Á Víðilæk býr ung-
ur bóndi, Stefán Þórarinsson að nafni. Hann er búfræðing-