Búnaðarrit - 01.01.1902, Page 240
232
störf við sýDÍngarnar, leiðbeinir félagsmönnum í að færa
skýrslur sínar, og sér um að þærkomi til hennar í tæka tíð-
í’ormaður félagsins boðar til og stýrir stjórnarfundum
og aðalfundum félagsins, og lætur bókfæra stuttan útdrátt
af gjörðum þeirra. Hann boðar einnig til aukafunda ef á-
stæður þykja til. Formaður félagsins er fulltrúi þess út á
við, sér uin brófaviðskifti þess, aðalreikning og skýrslur,
ber ábyrgð á að eignir félagsins séu tryggilega geymdar og
gefi sem bezta vexti.
Deildarstjórarnir eiga sérstaklega að vaka yfir málefn-
um félagsins bver í sinni deikl' I?eir eiga að koma minst
tvisvar á ári til hvers félagsmanns í deild sinni, og leiðbeina
þeim í, undan hvaðakúmþeir eiga að ala, líta eftir hirðingu
og meðferð gripanna, og sjá um að skýrslur hvers félags-
manns sóu réttar og vel færðar.
8. gr.
í hverri deild skal jafnan vera eitt kynbótanaut til
afnota, er komið só til fóðurs á hentugum stað i deildinni.
Stjórnin annast sumargeymslu allra nauta félagsins.
Hverju kynbótanauti skal fylgja bók þar, sem í er rit-
uð stutt lýsing nautsins og foreldra þess. Þar skal og rita
nöfn eða númer allra þeirra kúa, sem kynbótanautið er leitt
til eða sem leiddar eru undir það, svo og kálfa þá sem
undan þeim koma.
9. gr.
Hver félagsmaður skal greiða 1 kr. tillag á ári í sjóð
félagsins. Deir eru og skyldir að nota naut fólagsins til
allra sinna kúa, nema stjórnin gjöri öðruvísi ráðstafanir.
í nautstoll greiðist 2—3 kr. fyrir hverja kú, er stjórnin á-
kveður nánara ár hvert. Kynbótanautiu iná ekki nota til
sjúkra kúa, og eigi heldur til kúa, sem liafa látið, fyr en
eftir 4 mánuði.
10. gr.
Skyldur er hver félagsmaður að halda nákvæma fóður
og mjólkurskýrslu, eftir fyrirmynd frá stjórninni, og senda
afskrift af lienni í janúar ár hvert til hlutaðeigandi deild-