Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 11
Hlin
9
Kvenfjelagið »Samhygð» Hrísey, stofnað 10. mars 1919,
bað um inntöku í Sambandið, og gaf formaður þess,
Svanhildur Jörundsdóttir, skýrslu um starfsemi fjel. und-
anfarin ár.
IV. Bindindismál: Lesið upp erindi frá Stórstúku ís-
lands, þar sem þess er farið á leit við S. N. K., að það
gangi f »Bannbandalag íslands«, sem ráðgert er að stofn-
að verði í Reykjavík seint í þessum mánuði (júní).
Miklar umræður urðu um málið, og að lokum sam-
þykt svohljóðandi tillaga með öllum greiddum atkvaeðum:
Fundurinn samþykkir, að verði Bannbandalag stofnað,
sje æskilegt að S. N. K. gangi í sambandið og sendi
fulltrúa á stofnfund þess.
Fól fundurinn Ingibjörgu Benediktsdóttur að mæta sem
fulltrúi fyrir hönd S. N. K. á væntanlegum stofnfundi
Bannbandalags íslands og ÁIfheiði Einarsdóttur til vara.
Fundi frestað til miðvikudags.
Rá var fundi haldið áfram kl. 9 að morgni.
Svohljóðandi tillaga kom fram frá Jónínu Líndal:
Sökum þess að fundur S. N. K. er hlyntur bannmál-
inu og bindindisstarfseminni, felur hann stjórninni að leit-
ast fyrir um það, hvort deildirnar vilji taka bindindis-
heit upp á stefnuskrá sína.
Pessi tillaga var feld með 7 atkv. gegn 6.
V. Kvennaheimilið í Reykjavík. Forstöðukona talaði
fyrir því, að S. N. K. keypti hlut í því fyrirtæki, til þess
að sýna, að við kynnum að meta þá viðleitni Reykja-
víkurkvenna að hjálpa aðkomukónum á þennan hátt.
Allar konur, sem til máls tóku, voru þessu meðmæltar,
en nokkuð greindi á um, hve hárri upphæð skyldi varið
í þessu skyni.
Svohljóðandi tillaga samþykt:
S. N. K. samþykkir að kaupa 200,00 króna hlut í
Kvennaheimili Reykjavíkur.