Hlín - 01.01.1926, Qupperneq 52
5Ö Hlin
sje upp í heyranda hljóði, og hins sama getið í gjörða-
bók fjelagsins.
11. gr.
Stjórnarnefndin skal hlutast til við húsbændur ógiftra
kvenna, sem í fjelaginu eru, og hafa fengið góðan vitn-
isburð (sbr. 10. gr.) og að öðru leyti eru þrifnar og
reglusamar, að þær fái hæfileg verðlaun fyrir verkvendni
sína, sem stjórnarnefndin stingur upp á, eftir því, sem
hluturinn er vel eða ágætlega af hendi leystur.
12. gr.
Á haustfundi skulu konur skýra frð áliti sínu, hvað
hvert heimili þarf mikinn matarforða til vetrarins, sem í
hönd fer, eftir fólkstölu, og skal forstöðunefndin, að
fengnum upplýsingum á hverju heimili, frá hverju konur
eru í fjelaginu, um málnytu að vetrinum og aðrar kring-
umstæður, ráða til þeirra umbóta, er við eiga til að forð-
ast bjargarskort; einnig sje þá rætt um, hvernig ullarvinna
fari best fram að vetrinum, og hvað tiltækilegast sje að
vinna til fatnaðar og sölu og sparnaðar útlendum varn-
ingi, og hvað hver fyrir sig eigi að koma með til sýningar
á næsta vorfundi; á þeim fundi má og vera umræðuefni
hvað annað, er til gagns horfir og fjelaginu er til eflingar.
13. gr.
Sjerhver sú, sem er í fjelaginu, er skyld af efla heillir
þess, svo það mætti fá, sem fljótastan og bestan viðgang.
14. gr.
Afl skal atkvæðum ráða, en þegar jafnmörg eru á
báðar hliðar, ræður atkvæði forsætu.
15. gr.
Kostnaður sá sem leiðir af skrifarastörfum fjelagsins,
verður ekki börgaður, en gjörðabók verður fjelagið að
kosta eftir ráðstöfun stjórnarnefndarinnar.
16. gr.
Fjelagið telur ár sitt frá fardögum til næstu fardaga.