Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 33
Hlln
31
á heppilegustu leiðir til að koma hinum ýmsu málum
kvenna í æskilegt horf, vera aðalsamtengingarliðurinn,
sem haldi þessu sambandi lifandi, standi fyrir ýmsri
nauðsynlegri fræðslu í þjóðfjelagsmálum, og vera aðal-
fulltrúi kvenna gagnvart löggjafarvaldinu og ríkis-
stjórninni. Kostnaður, sem af þessu sambandi leiðir,
verður tiltölulega lítill, ef flest eða öll kvenfjelög taka
þátt í því. Yrði sá kostnaður aðallega brjefaskriftir og
einstöku símtöl. En ef um fyrirlestraferðir eða námskeið
er að ræða, þá yrðu þau fjelög, sem óskuðu eftir því,
að bera þann kostnað að einhverju leyti, þó að miðstöðin
mundi, að sínu leyti, gera sjer alt far um að styrkur feng-
ist frá ríkinu handa konum í þessu skyni.
Formaður nefndarinn gerði því næst ítarlega grein fyrir
því, sem fyrir nefndinni vekti í þessu efni, og lagði aðal-
áhersluna á, hve nauðsynlegt konum væri að vera vak-
andi og á verði í jafnrjettismálurn sínum út á við.
Til máls tóku auk framsögumanns; Rebekka Jónsd.,
Sigurl. Knudsen, Steinunn Hj. Bjarnas., Ingibj. Skaptad.,
Halld. Bjarnad., Elísab. Eiríksd., Ingv. Sigmundsd., Hólmfr.
Árnad., Hólmfr. Pjetursd., Kristbj. Marteinsd., Ingibj.
Benediktsd. Tillagan samþykt með öllum greiddum
atkvæðum.
Eftir kaffihlje var heimilisiðnaðarmálið tekið til umræðu
og úrslita. Pessar tillögur voru bornar upp Og samþyktar
með öllum greiddum atkvæðum:
I. 2. landsfundur kvenna leggur til, að kosin verði 7
kvenna nefnd, heimilisiðnaðarnefnd, er starfi að því milli
landsfunda að koma í framkvæmd þeim tillögum, sem
samþyktar verða í málinu á landsfundinum, og leggi hún
fram á næsta landsfundi álit sitt og skýrslur. Millifunda-
nefndin leiti samvinnu við þá nefnd, er S. N. K. kaus í
málið á fundi sínum 7. júní 1926.
Kosningu hlutu í heimilisiðnaðarnefnd: Sigrún Blöndal,
Mjóanesi, Múlasýslu, Helga Kristjánsd, Laugum, Ping-