Hlín - 01.01.1926, Síða 148
146
Hlln
af öllum höfuðstólnum, eins og hann þá er orðinn,
þangað til svo mikið fje er fyrir hendi, að landshöfðing-
inn eftir samráði við amtsráðið í Vesturamtinu álítur það
nægilegt til þess að setja kvennaskólann á síofn, svo að
hann geti tekið til starfa, án þess að höfuðstóllinn sje
skertur.
5. F*að er ósk mín, að fyrirkomulag hins fyrirhugaða
kvennaskóla verði sem líkast kvennaskólanum í Ytri-Ey
eins og hann er nú, og að hann verði settur í einhverri
af syslunum kringum Breiðafjörð, eða verði því ekki við
komið, þá í ísafjarðarsýslu, og verði því heldur ekki við
komið, þá hvar sem hentast þætti í Vesturamtinu. Allar
þær ráðstafanir, sem lúta að því að koma skólanum á
fót og ákveða um fyrirkomulag hans, skuiu gerðar af
landshöfðingjanum í samráði við amtsráð Vesturamtsins,
og skal 'skólinn, þegar hann er stofnsettur, ásamt höfuð-
stól hans og árstekjum, sömuleiðis vera undir stjórn
landshöfðingjans í samráði við amtsráð Vesturamtsins.
Til staðfestu er mitt eiginhandar nafn undirskrifað í
viðurvist notarii publici.
Reykjavík, 15. janúar 1890.
Herdis Benedicísen.
(Not. vottorð).
Reikningur
yfir tekjur og gjöld Minningarsjóðs Herdisar og Ingileifar
Benedictsen árið 1924.
Tekjur:
1. Sjóður í ársbyrjun (Stj.tíð. 1924, B, bls. 178);
a. Lán gegn fasteignaveði kr. 80990.00
b. Hlutabrjef í ísl.banka — 2400.00
e. Innstæða í Söfnunarsjóði — 9915.54
Flyt kr. . . . 93,305.54