Hlín - 01.01.1926, Page 39
HUn
Eftirmáli.
37
Bjartir og fagrir runnu þeir upp með hlýindum og
stillilogni, þessir ógleymanlegu júnídagar á Ákureyri. Full-
trúar til landsfundarins streymdu að úr öllum áttum:
Ooðafoss kom 4. og Esja 5. júní vestan fyrir land.*)
Konur af Austurlandi urðu, vegna óhentugra skipaferða,
að koma löngu áður. Pingeyskar konur, er áttu yfir Vaðla-
heiði að sækja, ljetu sjer ekki fyrir brjósti brenna að
ganga yfir heiðina, þar sem hestfærið þraut. Að öðru
leyti voru vegir orðnir góðir og gróður nokkur, svo ey-
firskar konur áttu hægt með að komast leiðar sinnar. —
Öllum þessum gestum fagnaði móttökunefnd og »fóst-
urforeldrar« hið besta.
Mikinn og góðan undirbúning útheimta svo fjölmennir
fundir, ef hvergi á að skeika. Og þær fóru ekki út af
laginu, Akureyrarkonurnar, þær höfðu hugsað fyrir öllu,
og samstarfið gekk liðugt og leikandi ljett, að þvi er virt-
ist. — F*rjár fastar nefndir, auk forstöðunefndar, störfuðu
að undirbúningi fundarins: Sýningarnefnd, skemtinefnd
og kaffinefnd. Margar aðrar konur rjettu hjálparhönd og
studdu fúslega að starfi. — Undirbúningur allur og við-
tökur voru Akureyrarkonum og bænum í heild til stór-
sóma. Átti hið góða skipulag eflaust drjúgan þátt í að
gera fundinn svo ánægjulegan sem raun varð á.
Pann 7. júní að kvöldi var kynningarfundur með kaffi-
samdrykkju í samkomuhúsi bæjarins, og fulltrúum þá af-
hent aðgöngu-merki að fundinum, um leið og þeir greiddu
innritunargjald sitt (kr. 5.00). Merkin gáfu frían aðgang
aó kvöldskemtunum fundarins og iðnsýningunni. Fund-
urinn veitti og miðaftanskaffi, var það samdrykkja, — og
þá oft glatt á hjalla.
*) Eimskipafjel. Islands veitti fulltrúum ívilnun á fargjaldi, önnur
fjelög synjuðu.