Hlín - 01.01.1926, Síða 31
Hlin 29
Jóhannsd., Ouðrún Torfad., Elísab. Ouómundsd., Sigurl.
Björnsd. og Aðalbji Sigurðard.
Svohljóðandi tillaga kom frá frummælanda, er var sam-
þykt með öllum greiddum atkvæðum: 2. landsfundur
kvenna skorar á stjórn Búnaðarfjelags íslands að verja
að minsta kosti kr. 5000.00 af því fje, sem það hefir til
umráða úr ríkissjóði, til að láta halda námskeið og leið-
beina í garðyrkju og til að hjálpa efnilegum kónum til
náms í þeirri grein. Fundurinn kýs 5 kvenna nefnd til
að starfa að þessu máli milli iandsfunda og gefa B. ísl.
leiðbeiningar um úthlutun fjárins. — Pessar konur hlutu
kosningu: Sigurb. Kristjánsd., Kristín Ouðmundsd., Mar-
grjet Sölvad., Halld. Bjarnad., Guðr. Björnsd., garðyrkju-
kona, Knararbergi pr. Akureyri. Til vara: Kristbj. Jóna-
tansd.
Næsta mál á dagskrá var Ávarpstitill kvenna. Frummæl-
andi: Halldóra Bjarnadóttir. Hún gat þess, að um allan
heim væri nú sú hreyfing að ryðja sjer til rúms, að allar
konur, giftar sem ógiftar, hefðu sama ávarpstitií í ræðu
og riti, og væri það eitt af jafnrjettiskröfum nútímans. —
Til máls tóku auk frummælanda: Siguri. Knudsen, Hans-
ína Benediktsd., Bríet Bjarnhjeðinsd., Ragnh. Pjetursd.,
Kristín Ólafsd., Ingibj. Benediktsd., Sigurb. Kristjánsd.,
Björg Eiríksd., Hólmfr. Árnad., Margrjet Sölvad , Rebekka
Jónsd., Aðalbj. Sigurðard., Hólmfr. Pjetursd. og Sig. skóla-
meistari Ouðmundsson, er staddur var á fundinum, og
var boðið að taka til máls.
Pví var meðal annars talið til gildis að einn titill væri
heppilegri, en hinir ýmsu sem nú eru notaðir, að karlar
notuðu aðeins einn ávarpstitil, herra, væri það jafnrjettis-
krafa kvenna, að sama regla væri tekin upp, að því er
snertir ávarpstitil þeirra, og væri ekki annar íslenskari
eða viðfeldnari en orðið — frú. Gegn því var mælt, og
talið líklegt að heldri konur, svo kallaðar, mundu fara