Hlín - 01.01.1926, Qupperneq 2
Kvennaskólinn á Blönduösi.
Kensla hefst í skólanum hinn 15. október í haust, en hauststörf
byrja 1. okt, svo æskilegt væri að nemendur yrðu þá sem flestir
komnir. Kenslan stendur til 14. maí í vor.
Kent verður: Hússtjórn, vefnaður, ailskonar kvenfatasaumur og
önnur handavinna og karlmannafatasaumur í sjerstakri deild. —
I bóklegu er aðal-áhersla lögð á íslensku og reikning.
Inntökuskilyrði í skólann eru þessi:
a. Að umsækjandi sje ekki yngri en 14 ára. Við hússtjórnarstörf
helst ekki yngri en 18 ára.
b. Að hann hafi engan næman sjúkdóm, sje hraustur og heilsugóð-
ur og sanni þetta með Iæknisvottorði.
c. Að hann hafi vottorð um góða hegðun.
d. Að helmingur af skólagjaldi og fæðisgjaldi sje greitt við inn-
töku, og ábyrgð sett fyrir eftirslöðvum.
e. Að umsækjandi sanni með vottorði, að hann hafi tekið fullnaðar-
próf samkvæint fræðslulögum, ella gangi undir inntökupróf, þegar
hann kemitr í skólann.
Skólagjald er 75 kr. um námstímann.
Nemendur hafa haft matarfjelag og skólinn sjer um allar nauðsynjar.
Skólinn leggur námsmeyjum tii rúmstæði með dýnum. Annan
sængurfatnað verða þær að leggja sjer til, svo og góðar hlífðar-
svunlur, handklæði og mundlínur (serviettur). — Æskilegt er að
sem flestir af neniendum hafi með sjer saumavjel. •— Nemfendur
hafi með sjer eina eða fleiri flíkur til að sníða upp úr eða gera við.
Þeir hafi og með sjer sálmabók, Passíusálma og texta við ísienskt
söngvasafn. — Umsóknir um inntöku í skólann sendist formanni
skólastjórnarinnar, alþm. Þórarni Jénssyni á Hjaltabakka, fyrir 15. júlí.
Vefnaðarnámsskeið verður haldið vorið 1927. Námstími 6—8 vikur.
GARÐYRKJUNÁM.
Nokkrir nemendur, piltar og stúlkur, verða tektiir til garðyrkju-
náms hjá undirritaðri næstkomandi vor og suntar. Surnarnetnendur
fá einnig tilsögn í að matreiða matjurtir. Fæði og húsnæði fá nem-
endttrnir ókeypis, en leggja sjer til rúniföt. Umsóknir, ásanit læknis-
vottorði, þurfa að vera komnar til undirritaðrar fyrir 1. febr. 1927.
Guðrim Þ. Björnsdóttir, Knararbergi við Akureyri.
HVANNIH.
Matjurtabók eftir Einar Helgason, fæst hjá höfundinum og kostar 6 kr.
Þær konur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum, sem heldur vilja greiða
andvirði Hlínar á Akureyri, mega afhenda það Arnlieiði Skafta-
dóttur í Kaupfjelagi Eyfirðinga. Hún gefur kvittun fyrir greiðslum.
Kaupendur Hlínar hafa flestir tjáð sig fúsa til að kaupa tvö eintök
í stað eins af 10. árg. (samkvæmt augl. t 9. árg.), og cr því þessi
árg. helmingi stærri en hinar fyrri, en verðið'sama. — Það væri æski-.
legt að sem mest af andvirði ritsins greiddist að þessu sinni fyrir nýár.
Utanáskrift Halldóru Biarnadóttur ér >Hlin<. Reykjavík.