Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 37
3á
HÍiti
dóttir gat þess, að viðar væri undirbúningur hafinn fyrir
hátíðina en á íslandi, því frjest hefði að Vestur-íslend-
ingar mundu koma mjög fjölmennir til þjóðhátíðarinnar.
Auk framantaldra töluðu í málinu: Ingibj. Skaptad., Aðalbj.
Sigurðard., Bríet Bjarnhjeðinsd., Ingibj. Benediktsd. og
Ragnh. Pjetursd. Tillaga borin upp og samþ. í einu hljóði:
2. landsfundur kvenna skorar á þing og stjórn, að
skipa konur, jafnt körlum, í nefndir þær, er starfa að
undirbúningi þjóðhátíðarinnar 1930.
Steinunn Hj. Bjarnason.
Pá var þessi tillaga borin upp:
2. landsfundur kvenna æskir þess eindregið, að Aðal-
björg Sigurðardóttir sjái sjer fært að birta á prenti, sem
fyrst, hinn ágæta fyrirlestur, »SáIarlíf konunnar og afskifti
hennar af opinberum málum,« er hún flutti í sambandi
við fundinn. Mundu konur helst óska, að fyrirlestur
þessi birtist í góðu tímariti til dæmis í »Eimreiðinni.«
Ingibjörg Benediktsdóttir, Ouðrún Jóhannsdóttir.
Tillagan var samþykt í einu hljóði.
Tillaga borin upp af Kristbjörgu Marteinsdóttur og
samþykt með öllum greiddum atkvæðum:
2. landsfundur kvenna vottar rithöfundi Einari H.
Kvaran samúð og þökk fyrir þann skerf, sém hann hefir
lagt til íslenskra bókmenta. fslenskum konum gleymast
ekki hinar göfugu konur, sem hann hefir skapað í sög-
um sínum.
Pessar tóku til máls um tillöguna: Kristbj. Marteinsd.,
Aðalbj. Sigurðard., Ouðr. Jóhannsd., Ingibj. Benediktsd.,
Sigurl. Knudsen ög Bríet Bjarnhjeðinsd.
Hansína Benediktsdóttir mintist eyfirsku skáldkonunnar,
Kristínar Sigfúsdóttur, og bað fundarkonur að standa
upp í þakklætis- og virðingarskyni við hana, og var það
gert.
Næsti landsfundurinn (1930). Framsögumaður Bríet
3*