Hlín - 01.01.1926, Qupperneq 125
Hlin
123
tún, koma upp görðum og hafa eftirlit með húsinu og
því sem þar er unnið að sumrinu.
Pað er í ráði að hafa þegar á næsta vori garðyrkju-
námsskeið við skólann. Svo með tíð og tíma verður skól-
inn vonandi, einnig í þessu efni, mentamiðstöð hjeraðsins. —
Pað var mjög hyggilegt af skólanefndinni að ráða duglegan
starfsmann við skólann yfir sumarið. Svo stór stofnun
má með engu móti vera mannlaus nær því hálft árið —
og þörfin á að lagfæra kringum skólann og rækta tún
og garðávexti er mjög brýn. Skólinn á 6 — 7 dagsláttu
land, það þarf alt að verða að fallegu túni, þegar fram i
sækir. Brunarústirnar Ijótu eru þegar orðnar að fallegri
grasflöt, og grjótið úr rústunum að góðum skjólgarði,
er fyrirbyggir sandfok á lóðina, landið alt girt. Fjós og
hlöðu þarf að endurnýja, og verður það eflaust gert á
næstu árum.
Skólinn hefir notið vinsælda hjá þingi og stjórn, eink-
um á seinni árum. —
Á fjárlögum 1927 eru veittar til hans 30.034 kr., (35.000
kr. til kvennaskóla Rvíkur) 7034 kr. eftirgjöf á viðlaga-
sjóðsláni, 6000 kr. til miðstöðvar og rafleiðslu, 2000 kr.
nemendameðgjöf. Stúlkurnar greiddu 60 kr. á mánuði
auk 75 kr. skólagjalds.
Petta er mikið fje, og eðlilegt óg sjálfsagt, að almenn-
ingur geri kröfur á hendur skólanum á móti, enda er ó-
hætt að fullyrða, að hlutaðeigendur finna þá ábyrgð, sem
á þeim hvílir í þeim efnum.
Vonandi er, að þing og stjórn dragi ekki að sjer hend-
ina, er um framlög til þessa sjerskóla kvenna er að ræða,
því enn skortir mjög mikið á, sem eðlilegt er, aðj að-
staða sje svo góð sem skyldi við svo mikla og marg-
brotna verklega kenslu, um húsaskipun, áhöld og margt
fleira.
þarna á að eflast og magnast fyrirmyndar sjermenta-