Hlín - 01.01.1926, Qupperneq 29
Hlin
27
lofum, og að sjúkrasamlög og hjúkrunarfjelög væru
stofnuð sem víðast, er gæfu almenningi fræðslu, sem
að haldi mætti koma til þess að gera öflugar varnir
gegn sýkingu. Steingrímur læknir Mntthíasson hjelt því
fram, að kvillasemi mundi ekki meiri nú en áður, heldur
miklu minni, þar eð manndauði hefði minkað, og væri
minni nú en nokkru sinni áður, að undanskildum drep-
sóttum. Nú væru 600 sjúklingar á spítölum landsins og
þeir fullir, áður hefðu verið einn og tveir sjúklingar á
hverju sjúkrahúsi, og stafaði það af því, að áður hjálp-
uðu menn sjer sjálfir. Hann taldi það öfugstreymi í
landinu að senda alla sjúklinga á sjúkrahús. Hjúkrun
á heimilunum taldi hann heppilegri. — F*óra Guðmunds-
dóttir las upp skýrslu frá »Fjelagi íslenskra hjúkrunar-
kvenna«, og kom þar einkum fram mikill áhugi fyrir
því, að lærðar hjúkrunarkonur yrðu fastir starfsmenn í
öllum hjeruðum landsins. Formaður fjelagsins er Sigríður
Eiríkss í Reykjavík.Pá bar frummælandi, Porbjörg Ás-
mundsdóttir, fram svohljóðandi tillögu: 2. landsfundur
kvenna leggur til, að þriggja kvenna nefnd verði kosin
til þess að hafa heilbrigðismáiin með höndum milli lands-
• funda, og að til þeirrar nefndar verði þeim tillögum vísað,
sem snerta þetta mál. Samþykt í einu hljóði.
Fundarhlje var gefið einn klukkutíma.
Að því liðnu var gengið aftur til fundar. Var þá nefnd
kosin, samkvæmt áðurnefndri tillögu og hlutu þessar
konur kosningu: Hansína Benediktsd., Þorbj. Ásmundsd.
og Hólmfr. Árnad. Eftirfylgjandi tillögur voru bornar
upp og samþyktar í einu hljóði og vísað til nefndarinnar:
2. landsfundur kvenna skorar á kvenfjelög landsins að
beita sjer fyrir því, að sjúkrasamlög og sjúkratryggingar
komist sem víðast á fót, og að fjelögin verji til þessa
því fje, sem annars væri varið til smágjafa.
2. landsfundur kvenna leggur til, að þeir kvennaskólar,
sem til eru, og þeir, sem síðar verða reistir, veiti, auk