Hlín - 01.01.1926, Side 76
74
Hlln
sýning var haldin, en landssýningu þarf að hafa á 10
ára fresti. Þjóðin þarf að fá þarna skýra og helst sem
besta mynd af sjálfri sjer, en aðkomumenn góða hug-
mynd um menningarástand þjóðarinnar, með því að
skoða fjölbreytt handbragð hennar.
Síðustu 5 — 6 árin hefir þjóðin unnið mikið og gott
verk til viðreisnar heimilisiðnaðinum íslenska, en næstu
4 — 5 árin þarf að vinna enn betur að settu marki.
Jeg vil sjerstaklega beina orðum mínum til kvenfjelag-
anna og ungmennafjelaganna í landinu, sem hafa unnið
heimilisiðnaðinum stórmikið gagn. Pau þurfa að taka
þetta sýningarmál að sjer og vinna nú saman að þessari
sameiginlegu hugsjón fjelaganna, og taka á því, sem þau
hafa til: Velja og hafna með mikilli athygli* hlutast til
um, að vel gerðir hlutir verði geymdir til þess mikla
dags, því óvíst er að hægt verði að gera þá að nýju
fyrir þann tíma, — og »panta« beinlínis hluti hjá þeim,
sem gera sjerstaklega vel, svo að hlutaðeigendur hafi
nægan tíma til að afla sjer efnis o. s. frv. — Jeg treysti
því, að allur almenningur taki þessu máli vel, og fjelögin
og einstaklingar utan fjelaganna, er áhuga hafa í þessu
efni, láti ekki undir höfuð leggjast að ná í sem flesta
vel gerða hluti, og sem fjölbreyttasta, hvar á landi sem
eru, og sjeu vel vakandifnú þegar.'um^allar framkvæmdir
í þá átt.
F*ví má treysta, að fjelögin Iáti sjer, hjer eftir sem
hingað til, ant um að haldnar verði smá-sýningar til og
frá í bæjum og sveitum; þeim fjölgar nú óðum, sem
betur fer; þar æfast menn og læra hver af öðrum; enda
þarf nú hver einasti hreppur á landinu að hafa dálitla
sýningu á næstu 2 — 3 árum, en hjeraðssýningar að vera
haldnar í öllum hjeruðum fyrir 1930, þar sem væri úrval
hréppasýninganna, — eins og víða hefir nú gert verið.
Eins og gefur að skilja, tjáir ekki að kasta öllum sín-
um áhyggjum á herðar 2—3 manna, eins og gert var á