Hlín - 01.01.1926, Side 157
Hlin
155
koma saman í fundarsalnum, og hefír hver með sjer verkefni: Pilt-
arnir hnýta net, skera í trje o. fl. Stúlkurnar sauma, prjóna o. s. frv.
Einn ies upphátt: Pjóðsðgur, kafla úr íslendingasögum, kvæði o, fl.
Á iniðri vöku er drukkið kaffi. Allir hafa með sjer kaffi (óhitað),
sykur og brauð, og er öllum forðanum steypt saman. í vökulokin
er húslestur og sálmar sungnir. Hefir þetta orðið mjög vinsælt í
báðum deildum fjelagsins. (f yngri deildinni eru börn innan 14 ára).—
í fjelaginu eru 150—160 fjelagar.
Úr Kjósarsýslu. Ungmennafjélagið »Drengur« í Kjós hjelt sýningu
á ýmsum heimilisiðnaði vorið 1926.
Af Tjörnesi er skrifað: Kvenfjelagið hjer keypti prjónavjel í fyrra-
vetur, sem starfrækt hefir verið með góðum árangri.
Úr Mývatnssveit er skrifað: Seinni partinn f vetur var haldið
sauma- og vefnaðarnámsskeið á Skútustöðum. Þar var margt vel og
tnyndarlega unnið.
Úr Skriðdal S.-Múlasýslu er skrifað: Nú í sumar (1925) hefir Bún-
aðarfjelag hjer í Skriðdalnum gengist fyrir hlutafjársöfnun til að
kaupa eina spunavjel fyrir allan hreppinn, og vona jeg að hún komi
til notkunar næsta vetur.
Norðlensk kona skrifar: Mjer hefir gefist vel að lita skotthúfur
í steinlit, áður en jeg lita þær í svarta Iitnum, þá verða þær blæ-
fallegar og halda vel litnum.
sem ekki gat tekið til starfa á þessu ári eins
Staðarfells- og ákveðið var af þingi og stjórn, af því jörð-
skólinn, in losnaði ekki úr ábúð, tekur til starfa, að
öllu sjálfráðu, haustið 1927. Forstöðukona: Sig-
urborg Kristjánsdóttir.
, Ef konur veittu því nægilega athygli, hve stein-
Ur Norðurlandi: gólfin eru mikið skaðræði fyrir fæturna, þá berð-
ust þær fyrir þvi með oddi og egg að fá trje-
gólf í eldhúsin sín, þar sem þær snúast margar hverjar ár út og ár
inn. Það má ekki minna vera en að þær hlífi fótunum eins og hægt
er. Það er margreynt, að fótaverkur fylgir steingólfunum. — Leggið
sjálfar í þessa húsabót, ef ekki vill betur til, konur góðar, ykkur
mun ekki iðra þess. En öll trjególf þarf að olíubera (fernisera) og
það oft og vel, þá er bæði fljótlegt og ljett að halda þeim hrein-
um. — Pað er vandalaust og einfalt að olíubera gólf, það getur
hver maður gert. Það þarf að gerast árlega, þá verða gólfin hörð