Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 28
26
Hlin
að landsspítalinn kosti 1200 þúsundir króna og hefir
ríkið lofað að leggja fram 3A af þeim kostnaði, en gert
er ráð fyrir að spítalasjóðurinn verði 300 þúsund krónur,
og að honum verði varið til byggingarinnar. — í minn-
ingarsjóði spítalans eru nú um 100 þúsund krónur. —
Jónína Jónsdóttir gat þess, að í tilefni af komu konungs-
hjónanna til Reykjavíkur væri gert ráð fyrir, að hyrning-
arsteinn spítalans yrði lagður af drottningunni, meðan
hún dveldi í Reykjavík. Tillaga kom frá Ingibjörgu Bene-
diktsdóttur óg Hólmfríði Árnadóttur um, að samfagnað-
skeyti væri sent frá fundinum til Landsspítalasjóðsnefnd-
arinnar í Reykjavík. og var það samþykt í einu hljóði,
og þessum konum falið að senda það auk tillögumanna:
Steinunni Hj. Bjarnason og Jónínu Jónsdóttur. Tillagan
hljóðaði svo: Annar landsfundur kvenna ákveður, að
senda samfagnaðarskeyti til landsspítalasjóðsstjórnarinnar,
í tilefni af því, að drottning landsins muni í dag leggja
hornstein landsspítalans. — Breytingartillaga kom fram frá
Bríet Bjarnhjeðinsdóttur, um að fella burt »drottning
landsins« og var hún feld með yfirgnæfandi meirihluta.
Auk áðurtaldra tóku til máls: Hansína Benediktsd.,
Soffía Jónsd., Ingv. Sigmundsd., Ragnh. Pjetursd., Bríet
Bjarnhjeðinsd., Sigurl. Knudsen, Jóh. Gunnarsd., Aðalbj.
Sigurðard., Hólmfr. Árnad., Sigurb. Jónsd., Steingrímur
læknir Matthíasson, Ingibj. Skaptad., Halld. Bjarnad. og
Þóra Guðmundsd. Við umræðurnar var það augljóst:
að sjúkrasamlög voru alt of óvíða. Vaxandi heilsuleysi,
kent klæðnaði, óþrifnaði og fátækt. Sjúkrahúsin full og
ónóg, vöntun á hjúkrunarkonum, tískan í klæðaburði
tekin framyfir ráðleggingar hinna eldri, híbýlum manna
of lítill gaumur gefinn. Til varnar og umbóta á þessu
var talið nauðsynlegt, að fjölga hjúkrunarkonum, meira
eftirlit með þrifnaði, að konur lærðu hjálp í viðlögum,
umbætur á klæðnaði, að fá lækna í lið með sjer, til þess
að koma í vég fyrir að tískan ein rjeði þar lögum og