Hlín - 01.01.1926, Síða 21
Hlin
19
næsta landsfundi. Öllum tillögum, er fram koma í þessu
máli á landsfundinum, skal vísa til þessarar nefndar.
I nefndina voru kosnar: Aðalbj. Sigurðard., Halld.
Bjarnad., Hólmfr. Arnad., Ingibj. Benediktsd. og Kristbj.
Jónatansd.
Halld Bjarnad. bar fram eftirfarandi tillögu:
Með því að áhugl virðist vera að vakna fyrir því hjá
öllum almenningi, að nothæf verkleg kensla verði lög-
boðin í öllum barna- og alþýðuskólum landsins, þá felur
2. landsfundur kvenna fræðslumálanefnd sinni að búa
málið í hendur stjórnarinnar fyrir næsta Alþingi og
leggi hún jafnframt fram álit sitt um tilhögun kenslunnar.
Samþykt með öllum greiddum atkvæðum.
Tillaga kom frá Ingv. Sigmundsd. þannig:
2. landsfundur kvenna leggur til að kosin sje 3ja
manna nefnd til að reyna að hafa áhrif á fræðslumála-
stjórn og þing, að fjölgað sje barnakennurum svo, að
kennari fáist fyrir hver 20 börn í smáskólum, en fyrir
hver 25 í stærri skólum. Ennfremur vinni sama nefnd
að því, að barnakennurunum verði launað að öllu leyti
úr ríkissjóði í framtíðinni eins og öðrum starfsmönnum
ríkisins. — Visað til fræðslumálanefndar.
Enn kom svohljóðandi tillaga fram frá Halld. Bjarnad.
2. landsfundur kvenna skorar á skólanefndir landsins
að láta sjer ant um, að þau börn, sem einhverra hluta
vegna ekki geta fylgst með öðrum börnum við nám,
fái fræðslu eftir sínum hæfileikum, því þessi börn eiga
heimtingu á fræðslu engu síður en önnur börn.
Samþykt í einu hljóði.
Pá kom fram þessi tillaga frá Sigurlínu Sigtryggsdóttur:
Af því að íandsfundur kvenna lítur svo á, að ókurt-
eisar deilur blaðanna og stöðugar tilraunir þeirra til að
skerða mannorð andstæðinga sinna að ástæðulausu, hafi
siðspillandi áhrif á æskulýð landsins, þá leyfir fundurinn
sjer að skora á ritstjóra og aðra þá, er blöðunum ráða,
2*