Hlín - 01.01.1926, Blaðsíða 51
Hlín 49
7. gr.
Sú í stjórnarnefndinni, sem gegnir skrifarastörfum, má
kjósa sjer aðstoðarmann með sömu skiiyrðum, sem til
er tekið í 6. gr., hún skal halda brjefabók, í hverja hún
ritar það, sem fram fer á fundum, einnig allar framkvæmdir
tjelagsins; hún veitir skjölum fjelagsins móttöku, og
geymir þau vandlega, hún semur nafnaskrá yfir allar þær
sem í fjelaginu eru og ritar hana í gjörðabókina; sömu-
leiðis skal hún vera forsætu til aðstoðar eftir því sem
henni er mögulegt.
8. gr.
2 skulu vera fundir fjelagsins á ári hverju og skal
aðalfundur haldinn milli sumarmála og krossmessu, þar
sem forsæta ákveður, en haustfundur eftir veturnætur.
Par að auki kveður hún til aukafundar, þegar henni þykir
nauðsyn bera til þess.
9. gr.
F*á er fundur lögmætur, þegar helmingur allra þeirra,
sem í fjelaginu eru, sækja fundinn.
10. gr.
Á aðalfundi skal auk þess, sem áður er sagt (sbr. 5.
gr.) rætt og ályktað hvað fjelagið álítur best henta með
vinnubrögð kvenna, þeim til framfara, og hvað spara
megi af útlendum varningi og munaðarvöru, og hvað
nauðsynlegt er að kaupa til heimilisforða, að yfirvega
jafngildi milli innlendrar og útlendrar matvöru m. fl.
Einnig skal þá hver sú, sem í fjelaginu er, koma með á
fundinn til sýningar, eitthvað það, sem lýst getur kunn-
áttu og vandvirkni, svo sem skrift, reikningsdæmi, vaðmál,
sjöl, dúka, trefla, vel spunninn þráð, einnig vel verkað
smjör og osta o. m. fl. Kýs þá fundurinn 2 kvenmenn
til að segja áiit sitt um hvað hvert fyrir sig er vel af
hendi leyst, og gefa þeim vitnisburð fyrir, sem kveðinn
4