Hlín - 01.01.1926, Page 50
48
Hllti
2. gr.
Alt kvenfóik, gift og ógift, sem gengur í fjelagið, á að
taka eitthvað fyrir sig að læra, eftir því sem staða þess
frekast tillætur (sbr. 1. gr.), til eflingar augnamiði fjelags-
ins; en forsómi nokkur tilskilinn lærdóm, áminnist hún
i fyrsta sinni af fjelagsstjórninni, en sýni hún framvegis
hirðuleysi þar í, verður hún álitin gengin úr fjelaginu og
missir atkvæðisrjett á fjélagsfundunum.
3. gr.
í stjórnarnefnd fjelagsins skal fyrst um sinn kjósa þrjár
konur, eina forsætu, aðra fyrir skrifara og þriðju til vara,
og hafa þær starf sitt á hendi ártangt, en eigi lengur,
nema þær sjeu endurkosnar, en engin má skorast undan
nefndarkosningu.
4. gr.
Forsætan kallar nefndina til fundar svo oft, sem henni
virðist nauðsynlegt, til að ræða framfarir fjelagsins, og
semja uppástungur til nýrra framfara, er við mætti koma.
5. gr.
Forsætan skal sjá um, að lögum þessum sje hlýtt,
sömuleiðis öllum samþyktum, sem gjörðar verða á fje-
lagsfundum; hún kveður til funda og stýrir þeim og
birtir þar allar uppástungur nefndarinnar og önnur mál-
efni, er fjelaginu við koma, safnar atkvæðum og segir
fyrir hvernig þau skulu gefin. Á hverjum aðalfundi skýrir
hún frá athöfnum fjelagsins hið liðna ár.
6. gr.
Forsætan hefir rjett til, ef hún vill, að kjósa sjer að-
stoðarmann, sem verður að vera skynsamur bóndi innan-
hrepps, en í forföllum hennar, gegnir sú, sem er til vara
í nefndinni störfum hennar, og hefir hún þá sama rjett
og forsætan.