Hlín - 01.01.1926, Side 75
Hlln 73
kraft til heimilisstarfa, er það lífsnauðsyn, einnig fjárhags-
lega, að eignast þægileg húSj
Hver einasti maður, konur sem karlar, ættu að kynna
sjer einföldustu atriði húsagerðar, konurnar, svo að þær
geti gert tillögur, sem að gagni koma um híbýlin, og
þurfi ekki að segja eins og merkiskona í einum af kaup-
stöðum landsins sagði einu sinni við mig: »Já, ætti jeg
nú kost á að gera tillögu um húsbyggingu mína, skyldi
jeg haga öðru vísi til en gert var, bæði maðurinn minn
og smiðurinn voru að spyrja mig til ráða, en jeg svar-
aði þeim, að jeg hefði ekkert vit á því, þeir skyldu ráða
því«. (Húsið var með afbrigðum óþægilegt og leiðinlegt,
og var þó ekki efnaleysi þarna um að kenna).
F*að murf óhætt að fullyrða, að eitt af því marga, sem
á sinn þátt í því að draga fólkið til bæjanna, er að þar
eru húsakynni að miklum mun vistlegri en viða á sjer
stað til sveita, það mundi sannast, að yrðu húsnæði hlý
og vistleg í sveitum, og hver maður fengi dálítið rúm
útaf fyrir sig, eins og víðast á sjer stað í kaupstöðum
hjer á landi, yrðu menn fúsari á að dvelja langvistum t
sveitum landsins en nú.
H. B.
Heimilisiðnaður.
Heimilisiðnaðarsýningin 1930 og undirbúningur
hennar.
I
Pað hefir verið talið sjálfsagt að haldin yrði landssýning
á íslenskum heimilisiðnaði 1930, meðal annars vegna
þess, að þá eru 9 ár liðin síðan almenn heimilisiðnaðar-