Hlín - 01.01.1926, Síða 161
Hlln
150
sem heilnæmur reykur er af, t. d. gott að hafa við með. Verður þá
kjötið mjög vel reykt og bragðgott. Þetta hefir verið reynt hjer í
mörg ár.
Fjelagsskapur sá, sem nefndur er »Samvinna hjúkrunarkvenna á
Norðurlöndumi, hefir boðið »Fjel. ísl. hjúkrunarkvenna* sem er
deild í Sambandinu, að veita styrk einum fulltrúa til að sækja ár-
ieg þing Sambandsins. Nýtur ísland þar sömu hlunninda sem hin
stærri ríki. — Sambandsfundur var haldinn í Stokkhólmi í sumar.
Alþjóðasamband Rauða krossins bauð árið sem leið Rauða kross
fjelagi íslands, að láta útlærða hjúkrunarkonu koma til Lundúna og
stunda framhaldsnám við skóla Sambandsins í Bedford College. —
Kristin Thoroddsen hjúkrunarkona varð fyrir valinu.
Fiún er nú ráðin starfsmaður hjá Rauða kross félagi íslands.*
Kvenfjelagið »Ósk« á ísafirði hefir 3.500 kr. styrk á fjárlögum til
hússtjórnarskólahalds á ísafirði gegn 1000 kr. annarsstaðar frá.
Kvenfjelagið »Likn« í Vestmannaeyjum hefir lagt 5000.00 kr í
Stúdentagarðinn, fyrir herbergi handa stúdenl úr V.m.eyjum.
Fjelagið hefir boðist til að gefa innanstokksmuni í hinn nýja
spítala Eyjanna, og er gert ráð fyrir að það nemi 20 þús. krónum.
S.l. vetur hafði fjelagið 2 mánaða matreiðslunámsskeið í Eyjunum.
Nemeudur voru 12. Kennari Matthildur Sveinsdóttir, Akranesi.
Úr Árnessýslu: í sumar fer fram garðyrkjuleiðbeiningarstarfsemi
hjer í sýslunni. Námsskeiðin í Rangárvallasýslu í fyrra hafa vakið
áhuga. — Kennari er Ingigerður Ögmundsdóttir, frá Hjálmholti í
Flóa. — í vetur voru matreiðslunámsskeið haldin á nokkrum stöð-
um i Árnessýslu. Kennari: F^órunn Sigurðardóttir, frá Fiskilæk í
Borgarfjarðarsýslu. — Pessa umferðarkenslu kostar Búnaðarfjelag
ísl., Búnaðarsamb. Suðurl. og Ungmennafjel.samb. »Skarphjeöinn. —
Næst kemur röðin aftur að Rangæingum með námsskeið í matreiðslu
og garðyrkju.
Nemandi í Oróðrarstöð Ákureyrar skrifar haustið 1925: Spretta á
grænmeti og garðávöxtum var ágæt hjer í sumar. 11. ágúst tók jeg
t. d. upp kartöflur og vóg ein lh pd. Rófur voru þetta um 3 pd.
í haust. — Blómkál settu stór og falleg höfuð.
* Þar eru nú 2 deildir: Reykjavíkurdeild 1400 fjelagar, Akureyrar-
deild 200 fjelagar. Deildirnar taka á móti fjelögum hvaðanæfa
af landinu. — Minsta árgjald 5.00 kr. Fjelagið hefir 2000 kr.
styrk úr ríkissjóði.