Hlín - 01.01.1926, Síða 142
140
Hlln
að utan og að innan, þau eru nærri því undantekningar-
laust einlyft, og er það auðvitað gert vegna hitans, það
væri óþolandi að eiga oft á dag að hlaupa upp og ofan
stiga. Húsin eru mörg afar stór um sig, þökin eru stór
og slúta langt fram yfir til að bægja heitustu geislunum
frá, þar að auki eru opin svæði, svalir, framan við og á
bak við flest hús með tjöldum yfir, sem dregin eru upp
og niður eftir sól og vindi. Pannig er alt gert til þess
að húsin verði þolanleg, hve heitt sem er úti. í öllum
húsum eru stein-, tígla- eða marmaragólf sem í sjálfu
sjer eru altaf svöl. — Það eru margar vistarverur í hús-
um Evrópumanna hjer. Ein t. d. þar sem svalast er á
morgnana, en hitnar þegar fer að líða á tíunda tímann,
þá er fært sig í aðra sem enn er svöl, og loks í enn
aðra að miðdegisverði loknum. Á kvöldin sitja menn oft-
ast úti á svölum.
Fyrst á morgnana, þegar alt lífið í náttúrunni er að
vakna, er æfinlega svöl morgungola, og yndislegt að
horfa á alt endurrísa úr dvala næturinnar, fuglarnir syngja
hundruðum saman, hver með sínu nefi, syngja, skríkja
og tísta og láta þannig í Ijósi ánægju sína, og fiðrildin
iða í trjánum og á blómunum. Alt er hátignarlegra á
morgnana meðan fyrstu sólargeislarnir baða það, heldur
en þegar líður fram á daginn og hitamollan vex.
Brátt byrjar starfslífið, sem er hjer mikið og reglu-
bundið. Allar skrifstofur,. búðir og skólar opna kl. 7'/2.
Kl. 7 taka menn morgunböð; karlmenn klæðast hvítum,
stífuðum fötum, sem þeir skifta á hverjum degi og
oft tvisvar á dag, kvenfólk, sem oftast er heima á morgn-
ana, er í hvítum, þunnum, víðum morgunkjólum, eða
hinum svonefndu „Kimonosa sem nú eru að verða al-
þektir um víða veröld. F*ær ganga oftast,— að hjerlendum
sið — berfættar á sandölum heima í húsi og garði á
morgnana, börnin í einföldum, þunnum leikfötum, sem
oftast 6ru sniðin út í eitt, afar þægilegur og praktiskur