Hlín - 01.01.1926, Síða 36
34
tillll
til starfa undir stjórn Sigurborgar Kristjánsdóttur, skorar
fundurinn á Alþingi, að það veiti þegar á næsta fjárhags-
tímabili og framvegis, svo mikið fje til skólans, að hann
geti starfað sem fullkominn, gagnlegur húsmæðraskóli.
í nefnd þá sem lagt var til að yrði kosin, voru þess-
ar konur valdar: Sigurb. Kristjánsd., Jónína Líndal og
Elísabet Jónasd., kennari við Kvennaskólann í Rvík. Til
vara var kosin Ragnhildur Pjetursd., Háteigi.
Ennfremur var eftirfylgjandi tillaga samþykt:
2. landsfundur kvenna vísar því til húsmæðraskóla-
nefndar Akureyrar, að hún beiti sjer fyrir því, að næsta
Alþingi taki upp á fjárlögin fjárveitingu til byggingar
Húsmæðraskóla Norðurlands, samkv. lögum nr. 37, 26.
okt. 1917, gegn því að Akureyrarkaupstaður ábyrgist */3
byggingarkostnaðarins.
Tillaga þessi kom fram frá frú Sigríði Porsteinsdóttur:
Par sem konur hafa nú orðið aðgang að öllum opin-
berum skólum i landinu, þá leggur 2. landsfundur kvenna
það til, að Kvennaskóli Reykjavíkur verði gerður að hús-
mæðraskóla eða húsmæðra-kenslu kvennaskóla.
Tillögumaður tók tillöguna aftur, sökum þess, að hún
bjóst við að fundurinn teldi hana ótímabæra, en óskaði
þess, að hún yrði bókuð í fundargerðinni.
Pá var tekið til umræðu: s>Samvinna kvenna til að
undirbúa þjóðhátíðina 1930.« Framsögum.: Steinunn Hj.
Bjarnason. Flutti hún málið að tilhlutun »Bandalags
kvenna« í Reyjavík.
Aðalfundur Bandalagsins taldi áríðandi, að hvað sem
konur kynnu að takast á hendur til þess að leggja sinn
skerf til ársins 1930, þá yrði það unnið í sameiningu,
þannig, að hver landshluti vissi um það, er hinn hefði
með höndum, og útilokaði með því, að margir tækju t.
d. upp sama verkið. Taldi frummælandi, að málinu mundi
vel borgið í höndum néfnda þéirra, er lagt var til að
kvenfjelög landsins kysu hvert hjá sjer. Hólmfríður Árna-