Hlín - 01.01.1926, Side 14
12
Hlin
Annar landsfundur kvenna
haldinn á Akureyri 8.—14. júní 1926.
Boðsbrjef.
(Petta ávarp sendu nefndirnar til kvenna viðsvegar um
land veturinn 1925—1926):
Landsfundur kvenna í Reykjavík 1923 samþykti, að
annar landsfundur skyldi haldinn 1926 og fól Kvenrjett-
indafjelagi íslands að undirbúa það mál.
Nú hafa norðlenskar konur tekið höndum saman við
K. R. F. f. um undirbúning þessa fundar, og er nú á-
kveðið, að landsfundur verði haldinn á Akureyri í júní-
mánuði n. k. sumar.
Nefnd sú, er kosin hefir verið til að hafa allar fram-
kvæmdir í þessu máli, leyfir sjer hjer með vinsamlegast
að biðja yður, í samráði við önnur kvenfjelög sýslu yðar,
að hlutast til um, að kosnir verði tveir fulltrúar úr fje-
lögum eða utan þeirra, til að sitja fundinn fyrir hönd
sýslunnar. — Fulltrúum þessum bjóða Akureyrarkon-
ur að vera gestir sínir, meðan á fundinum stendur. —
Móttökunefndin á Akureyri óskar eftir, að nöfn fullfrú-
anna sjeu send fyrir 1. maí n. k., ásamt tillögum um
þau mál, sem þeir kynnu að vilja koma á dagskrá fund-
arins. — Sem innritunargjald til fundarins greiði hver
fulltrúi 5 kr., um leið og undirbúningsnefndin athendir
aðgöngumerki. — Auk þess er öllum konum heimilt að
sækja fundinn, og er móttökunefndin fús til að greiða
fyrir þeim með að útvega verustað, ef þær láta einhverja
nefndarkonuna á Akureyri vita það fyrir miðjan maí n. k.
* Reykjavík var boðið að senda 10 fulltrua á fundinn, og öðrum
kaupstöðum landsins einn fulltrúa hverjum, auk þess var nokkr-
um konum boðið sem heiðursfulltrúum.