Hlín - 01.01.1935, Blaðsíða 10
8
Hlln
handavinnu inn í bamaskólana og framhaldsfræðslu
fyrir ungmennin, hvatti til sýninga,, sem veittu eldri
sem yngri holla fræðslu. — I umræðunum lýsti sjer
mikill áhugi fyrir framleiðslu til eigin afnota á heim-
ilunum, bæði í kauptúninu Hólmavík og í sveítum hjer-
aðsins.
Svohljóðandi tillaga kom frá frummælanda:
»Fundur S. N. K. á Hólmavík beinir þeirri ósk og
áskorun til Kennarasambands íslands, að það geri það
sem í þess valdi stendur að koma því til leiðar, að
kostur verði á hagnýtri fræðslu í skólahandavinnu fyr-
ir starfandi kennara, karla sem konur«.
Tillagan samþykt.
Garðyrkjvmál.
Frummælandi í því máli var Ingibjörg Eiríksdóttir,
Mintist hún þess, hve erfitt garðyrkjan hefði átt upp-
dráttar hjer á landi íyrir 20—30 árum og hve kon-
urnar, þá eins og nú, hefðu látið sjer ant um hana.
Hvatti hún til að lögð yrði áhersla á ræktun kálmetis
og taldi mjög nauðsynlegt að garðyrkjukonur hefðu
mentun til að matreiða þessar fæðutegundir. Hún
skýrði frá því, að Sambandið hefði nú einni garðyrkju-
konu á að skipa,, en þörf væri á að hafa a. m. k. 2 á
sambandssvæðinu, en S. N. K. hefði ekki nema kr.
400.00 til styrkveitinga í þessu skyni (þar af kr.
250.00 frá Kvenfjelagasamandi islands). — Frum-
mælandi gat þess í þessu sambandi að erfiðlega gengi
oft að fá lærðar garðyrkjukonur, og þyrftu fleiri
stúlkur að eiga kost á að njóta náms við garðyrkju-
stöðvar landsins en nú ætti sjer stað.
Nokkrar umræður urðu um málið. Strandasýslukon-
uraar Ijetu í ljós ánægju sína yfir starfi garðyrkju-
konunnar, sem starfaði hjá þeim á vegum S, N. K. sl.