Hlín - 01.01.1935, Blaðsíða 104
102
Hlín
næst er baðstofu og svefnherbergi. Þar mundi einnig
miðstöðvareldstó verða komið fyrir. Eru hitaleiðslur
þaðan í aðra hluta hússins auðveldar og ódýrar. Vel '
gæti komið til mála að nota reykofn, þar sem hagar til
líkt og hjer,. en það mun ein hin ódýrasta upphitun,
og nægileg í smáhúsi sem þessu. útveggir hússins eru
venjulegir, tvöfaldir steinveggir. Vegghæð öll er tæp-
ir þrír metrar, og þar af nálægt einn metri í jörðu.
Mold og öðrum jarðvegi, sem fallist hefir til, þegar
grafið var fyrir gx-unni, er mokað upp að húsinu svo
hátt., að nemi um 50 sm. við vegg og síðan aflíðandi
brekka frá, sem síðar yrði tyrft yfir með grænu torfi.
Við rætur þessarar litlu brekku verður svo hlaðið, mjó
hellulögð stjett með grænt grasið á báðar hliðar. Hlað
með þessari gerð væri prýðisauki hverju heimili, en
kostar þó sáralítið, og húsfreyjurnar mundu finna, að
auðveldara er að halda bænum hreinum, ef svo er um
búið. Grasbrekkan hlúir að veggjum og gólfi og spar-
ar gröft, því að óvíða er jarðvegur svo meyr, að á-
stæða sje til að grafa niður á klöpp fyrir hús jafn-lág-
veggjað sem þetta. — Þakinu hallar á allar hliðar og
er því toppþak. Efni þess getur verið eftir vild, en
hjer er gert ráð fyrir borðaklæðningu á sperrum og
síðan tvöfaldur tjörupappi, tjörulímdur, bikaður og
malborinn,, og síðan þakinn grænu torfi til skjóls og
skrauts. Gólf úr timbri (helst Oregon pine) og
stoppað undir það með þurru torfi, annað þarf ekki,
ef framræsla er góð og jarðvegurinn í eðli sínu þur.
— Herbergin eru öll að nokkru leyti undir súð. Hæð
þeirra er því tveir metrar við útveggi, síðan um einn
metri af súð og þar næst lárjett loft. Að þessu er all-
mikill sparnaður, veggimir verða lægri, skammbitar
styttri og gluggar ná alla leið upp að þaki,, og þarf því
ekki að steypa fyrir ofan þá. Þakskegg er ætlast til að