Morgunn - 01.12.1926, Page 35
M 0 R G U N N
145
þekkingaratriði — alls ekkert trúaratriði — livar lyldlinn að
megninu af liinum dulrœnu sögum Nýja testamentisins sé
að finna. Vitaskuld má ganga að því vísu, að sumar frá-
sögurnar hafi skekst töluvert í meðferðinni, en hitt er líka
eins víst, að f jölmargar segja frá atburðum, sem eldcert vit vœri
í að fullyrða, að ekki hafi gerst. Eg gerði þessa sögu að um-
talsefni mínu í dag, af því að hún er ótrúlegri flestum öðr-
um fyrir þá menn, sem þekkingarlitlir eru á þessu efni. En í
hverju eru lielztu örðugleikarnir fólgnir að trúa sögunni?
Einn er vafalaust sá, að óliugsandi sé, að fjötrar geti dottið
af manni, án þess að þeir séu leystir á venjulegan hátt eða
brotnir með líkamlegu afli, og annar er sá, að óhugsanlegt sé,
að maður — Pétur — yrði fluttur í gegnum heilan fangelsis-
vegg, án þess að veggurinn vœri rofinn eða þess vrði að minsta
kosti vart, hvar hann hefði getað farið út.
Já, víst er örðugt að segja, livernig slíkir hlutir megi
verða, en vissulega er það ekki ótrúlegra, að fjötrarnir hafi
getað fallið af Pétri, án þess að nokkur maður liafi verið
þar að verki, lieldur en að hnútur liafi verið hnýttur á gull-
hring, eins og lcomið hefir fyrir á nokkurum stöðum og Sir
Oliver Lodge getur meðal annars um í einni af bókum sín-
um. Iíann segir um þann atburð, að hann sé kollvörpun á
■efnishyggjunni sem skýringu á lífinu. Og það er einmitt það,
sem vér verðum að átta oss á, að hugmyndir vorar um efnið
•eru ekki reistar á mjög miklu öðru en ímyndun. Eg hefi ekki
einungis vitað þungu efni lyft upp, án þess að nokkur kostur
væri að verða að öðru leyti var þess kraftar, er gerði það,
heldur hefi eg líka vitað til þess, að hlutir væru fluttir í gegn-
um heila veggi. Afar rammlega vottfestar sögur eru til um það
úr ýmsum löndum og stöðum, að menn hafi verið fluttir á
sama hátt í gegnum heilt efni. Yitaskuld veit enginn, hvernig
þetta geti orðið, og allra sízt þeir, er fyrir því verða. Flestir
eru þeir, meðan á því stendur, í hálfgerðu eða algerðu dái
(tranee). Svo var og sýnilega um Pétur, eftir því sem Postula-
sagan skýrir frá. Iíann vissi ekki nema óljóst, hvað var að
gerast, fyr en liann kom til sjálfs sín úti á stræti. Eg held
10