Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 37
MORGUNN
147
um að réttlætið er einn aí meginþáttum alheimsins og síð-
ferðið eitt höfuðeinkenni lians.
Vér stöndum andspamis lærisveinahópnum í stofunni við
bænahald sitt. Vér stöndum andspænis öllum mönnum á öll-
um tímum, sem bera hræðslu og örvænting í hjarta út af
ástvinum sínum, þegar þeir virðast vera leiksoppar í hendi
hlindrar náttúru og blindra manna. Vér stöndum andspænis
öllum þeim miljónum manna, sem finst sín eigin sál livísla
að þeim, að einliver máttur, æðri og göfugri, heyri hróp þeirra
og skilji meðaumkun þeirra og samúð með þeim, sem þeir elska.
Vér stöndum með öðrum orðum andspænis sjálfri trúartil-
finningu mannanna og spyrjum: Er þetta alt misskilningur ?
Er trúin ekkert annað en uppfundning mannsins sjálfs til þess
að svíkja sjálfan sig og telja. sjer trú um það, sem ekki er, til
þess að hann hnígi ekki undir byrðunum? Nei, segir sagan,
trúartilfinningin er það sannasta., sem til er í manninum, því að
liún segir honum það, sem áreiðanlegast er alls, að maðurinn
er aldrei einn. „Þótt eg fari upp í himininn, þá ertu þar; þótt
eg gerði undirheima að hvílu minni, þá ertu ])ar,“ segir
sálmaskáldið.
Og Pétur sjálfur. Eru þetta ekki einkennileg forlög? Er
ekki eðlilegt að hugsa sér, að hann hafi hrópað til Guðs áður
en hann sofnaði í dýflissunni, og spurt: A þetta að verða
endirinn? Eg, sem á alt mitt verk óunnið fram undan mér, á
það að geta komið fyrir, að eg verði leiksoppur í höndunum
á níðing og augnagaman skrílsins? Og það er rétt, hann átti
alt sitt verk óunnið. Og vissan um annað líf og trúin á til-
veru Guðs verður, að minsta kosti hjá mörgum, nátengd þeirri
hugsun, að mcðan verk hans sé óunnið, þá verði fyrir því séð,
að hann fái tœkifæri til þess að vinna það. Og stundum
verður verkið ekki fullgert, nema menn fái að deyja fyrir það.
Pétur var ekki látinn deyja fyrir það nú, en liann fékk það
síðar. Að minsta kost.i segja gamlar kristnar erfisagnir frá
því, að liann liafi verið líflátinn með krossfestingu í Neros-
ofsóknunum miklu. Erfisögnin kann að vera skáldskapur, en
]>að er þá skáldskapur, sem bvgður hefir verið á reynslu líkri
10*