Morgunn - 01.12.1926, Side 43
M ORGUNN
153:
Þeir, sein teknir eru af lífi, eru í þessum hóp, og mér
hefir verið sagt, að skelf'ing þeirra, sem líflátnir eru, sé svo voða-
leg, að henni verði ekki með orðum lýst.
Sjálfsmorðing.iar verða ósjaldan fyrir þeirri hryllilegu
reynslu, er þeir koma yfir um, að þeir stara á líkamann, sem
þeir hafa banað, og verða oft líka sjónarvottar að hinni áköfu
sorg og kvöl ástvina sinna, sem trega þá og harma fljótræðis-
verk þeirra.
Það er ein tegund manna hérnamegin, sem áreiðanlega
heldur mættinum til að sjá jarðsjónir mjög greinilega. Eg á
við þá framliðna vesalinga, sem vér köllum jarðbundna, þá
sem fram á síðustu stund sinnar jarðnesku æfi liafa verið.
lastafullir, saurlífir, þrælar losta og drykkjuskapar, grimmir
og ágjarnir. Slíkir hafa mikla jarðsjón og nota hana mjög
hörmulega. Fyrir hjálp hennar reyna þeir að festa sig við þá,
sem þeir finna til skyldleika við. Líkur sækir líkan lieim, og
mér hefir verið sagt, til dæmis, að framliðinn maður, sem verið
hefir ofurseldur drykkjuskaparástríðu, iiafi stundum nautn
og jafnvel ánægju af að festa sig við jarðneskan mann jafn-
spiltan, ef hann getur.
Þessir vesalingar, sem orðið hafa eftirlátseminni við sjálf-
an sig að bráð, eru vissulega um stund í því helvíti, sem þeir
sjálfir hafa búið sér. Eðlilega þjást þeir mjög, en smásaman
minkar girndarbruninn, sem eyðir þeim stig af stigi, og þegar-
tíminn er kominn og fyrir hjálp þjónandi anda, leggja þeir á
stað upp hinar bröttu brekkur, sem liggja upp til lieilagleikans.
Það er hörmulegt, að mönnum skuli ekki alment vera kunn-
ugt um þetta á jörðunni og þeir um það fræddir. En þetta
mun verða á vitorði allra, er fram í sækir. Nú eru gerðar svo
eindregnar tilraunir hérnamegin tjaldsins til þess að kenna
þeim og fræða þá um þessa hluti, sem enn eru holdi klæddir,
svo að sannleikurinn í þessum efnum nái smátt og smátt föst-
um tökum á hugum manna og upplýsi þá og hjálpi þeim til
að bæta breytni sína og lifa andlegu lífi.
En eg hygg, að þér fáið ekki mikið af þessari liinni nýrri