Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2009, Side 89

Andvari - 01.01.2009, Side 89
andvari SÖGUHETJAN JÖRGEN JURGENSEN 87 Þetta er vel kveðin frásögn. En þetta er ekki upprifjunarkvæði til gamans eins. Skáldið lætur sægarpinn verða frá sér numinn af hrifningu þegar hann sér Island rísa úr sæ, hann grípur sér um hjarta og finnur að hér bíður það frelsisins kóngsríki sem hann hefur alla tíð dreymt um. Og eymd þegnanna rennur honum til rifja. Kvæðið breytir smám saman um tón og skáldið fer að ávarpa söguhetjuna sem: vinur. Þessum hlálega ævintýramanni sem útnefndi sig verndara hins stolta íslands í hálfan annan mánuð einn sumarpart úr ári, skal ekki hallmælt. Jörundur heitir kvæðið og hefst á fleygum orðum: „Þið munið hann Jörund.“ * IV Tæpum fjórum áratugum eftir að kvæði Þorsteins birtist, frumflutti Leikfélag Reykjavíkur leikrit þar sem Jörundur er aðalleikhetjan. Síðasti víkingurinn heitir sá leikur og höfundur var enginn annar en Indriði Einarsson, þá orð- inn aldraður maður, því frumsýningin var vorið 1936. Mun leikurinn hafa verið valinn til sýninga öðrum þræði í viðurkenningarskyni við hinn aldraða leikhúsfrömuð sem þá var áttræður og hálfum tug betur, því að mönnum bar nokkuð saman um að leikritið væri ekki besta verk Indriða. Lárus Sigurbjörns- son orðar það kurteislega í blaðarýni og segir menn ekki þurfa að vera sam- mála skáldinu um skilning á þessari sögupersónu til að njóta leiksins. Nú var Þorsteinn Erlingsson talsverður realisti í sinni skáldsýn og kátleg lýsingin á Jörundi ber þess nokkuð glýjulaus merki, en Indriði er hins vegar rómantíker. Jörundur hans er víkingur, eins og titill leiksins bendir til, og þykir Lárusi nokkuð skorta á að Gestur Pálsson, sem túlkaði Jörund, væri nógu stæltur til að lýsa hetjulundinni, en tækist betur upp með glæframanninn og elskhugann. Leikritið er nefnilega öðrum þræði ástarsaga Jörundar og Guðrúnar á Dúki, sem á að vera fegurst stúlkna á íslandi og fórna sér fyrir föðurlandið. Hér er einfaldlega ekki rúm til að endursegja efni leiksins, en hann gerist fyrst á °pnu svæði í Reykjavík og sér inn í „klúbb-lystihúsið“, þá á skrifstofu hunda- dagakonungsins og loks um borð í skipinu Margrethe og Anne, með Island og Guðrúnu á Dúki að baki. Það er kaupmaðurinn Phelps og sultarástand lands- nianna sem ýta Jörundi af stað. Afstaða skáldsins er skýr: Jörundur er hug- sjónamaður og vill íslandi vel. Guðrún er göfug kona og gefur sig þeim manni sem vill frelsa þjóð hennar frá örbirgð, en er þó stórum gætnari en fullhuginn Jörundur, sem stundum lætur gjörð ganga fyrir hugsun. En býsna ólíkur er þessi Jörundur væntanlega þeim manni sem síðar á ævinni barði á innfæddum 1 Tasmaníu, marghýddur af lífsins atvikakeðju og drykk og spilum. Efnið er svosem nógu dramatískt, til dæmis sá kunni atburður þegar skipið brann og Jörundur á öðrum barki bjargaði fjölda manna, þeirra á meðal Hooker, grasa- fræðingnum fræga, frá bráðum bana. Hins vegar eru sumir dramatískustu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.