Andvari - 01.01.2009, Side 106
104
HANNES BJÖRNSSON
ANDVARI
handritum, en hún er ekki til umfjöllunar hér. Steinafræðin virðist vera skipu-
lega upp sett og glögg. Hún er til í allnokkrum handritum en eina handritið
sem ég hef litið lítils háttar á er Lbs. 1878, 4to og er eftir Helga Melsted.
Hannes lét ekki eftir sig nein ritverk sjálfur, enda var prestaskólakennurum
ekki veittur styrkur til útgáfu á fyrirlestrum fyrr en eftir hans dag. Handritið
sem er lagt til grundvallar hér64 er tölvufærsla af Lbs. 1852, 4to sem hefur að
geyma uppskrift Eiríks Magnússonar, bókavarðar í Cambridge, af fyrirlestr-
um Hannesar Arnasonar í sálfræði 1855-56.
Samsvarandi handrit frá öðrum tíma sem ég hef farið lauslega yfir eru Lbs.
317, 4to sem er uppskrift Jóns Þorleifssonar frá 1852 og JS. 514, 4to sem er
uppskrift séra Páls Jónssonar frá 1865. Einnig eru til samtíma handrit, sem
ég hef ekki yfirfarið. Það eru Lbs. 1468, 4to sem er uppskrift Jóns P. Melsted
frá 1855 og síðara hefti af tveimur Lbs. 2922, 4to frá 1856. Skrifari þess er
ókunnur.
Efnið er mjög sambærilegt milli handrita. Frumrannsókn á afskriftunum
sýnir að Hannes Árnason fylgir að mestu kaflaskiptingu Sibberns,65 en jafn-
framt að fyrirlestrarnir eru breytilegir milli ára. Til dæmis er hugmynda-
sögulegur kafli í fyrirlestri 1852 sem fellur út síðar. Þá lýtur áberandi stór
hluti námsefnis að þekkingarfræði (Erkendelse) og lítill hluti þess lýtur að
viljanum sem var meira rannsakaður síðar.66
Heimspeki Hannesar
Heimspekileg sálfræði Hannesar Árnasonar var grundvölluð á dönsku hug-
hyggjunni, sem sprettur af hinni þýsku. Líkt og lærifaðirinn F. C. Sibbern
var hann af meiði Kants, Fichtes og Schellings.67 Uppspretta þeirra allra
er hjá þýska heimspekingnum Christian Wolff (1679-1754) sem samþættir
heimspeki Leibniz við empirisku heimspekina.68 Rit Sibberns voru kennd
utan Danmerkur sem gott dæmi „wolffianskrar“ hefðar,69 en í henni ná
meginlandsheimspekin frá París, rökhyggjan, og enska heimspekin frá
Oxford, reynsluhyggjan, fyrst saman. Það má segja að rökhyggjumaðurinn
Descartes, sem almennt er talinn verða faðir nútíma sálfræði þegar hugur
hans skoðar sjálfan sig, mæti reynsluhyggjumanninum Locke, sem var
fyrstur til að sjá fyrir sér hugeindir sem hann taldi grunneindir allrar hugs-
unar.
Hughyggjan nær hámarki sínu hjá Georg Wilhelm Friedrich Hegel
(1770-1831). í Danmörku, sem annars staðar, var á þessum tíma sterkt andóf
gegn ákveðnum þáttum í heimspeki hans og ollu þar fleiri áherslur en ein.70
Heimspekingurinn Sören Kierkegaard (1813-1855) réðist af hörku gegn
dönskum hegelíönum sem boðuðu guðfræði sem gæti verið orð án verka.