Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2009, Page 123

Andvari - 01.01.2009, Page 123
andvari „OG VEISTU ÞAÐ, AÐ ÞÚ ERT EKKI TIL" 121 anhafs og austan milli afþreyingarbókmennta og fagurbókmennta, fjöldans og fílabeinsturnsins.5 Nýrýnin kom fram á fimmta áratugnum með rætur í þeim þriðja og hún hyllti „hið hreina ljóð“ sem virti engar aðrar skyldur en skylduna við ljóð- listina. Engar ytri aðstæður eða hugmyndafræði áttu að hafa áhrif á ljóðið sem væri lokaður heimur og sjálfu sér nægt. Eins og bent hefur verið á taldi nýrýnin fagurfræði sína hafna yfir hugmyndafræði en í raun gengu forvígis- menn hennar út frá forsendum frjálslyndrar mannhyggju þar sem valfrelsi einstaklingsins er ekki dregið í efa, mismunandi skerðing á því valfrelsi vegna efnahags, kyns eða stéttar skipti ekki máli og dónaskapur að draga það tal inn í siðprúðar vistarverur ljóðsins. Nýrýnin sagði að fyrsta og eina hlutverk Ijóðsins væri að veita viðnám gegn óreiðu og upplausn heimsins, fanga eitt- hvað í flugi þess eða flæði og fella það í form. Skáldið Archibald MacLeish er sennilega ekki frægt fyrir neitt annað en að segja: „A Poem shouldn’t mean. But be.“ („Ljóð á ekki að merkja neitt. Það á að vera“) og það spakmæli tekur Steinn Steinarr upp og notar sem einkunnarorð að fyrstu útgáfu Tímans og vatnsins. í þessum ummælum MacLeish felst að ekki er hægt að endursegja ljóðið, merking þess felst í formi þess, þversögnum, andstæðum og íroníu.6 Eftirlætisform nýrýninnar var þversögnin af því að hún nær að sameina skapandi undrun annars vegar og íroníuna hins vegar eða eins og Cleanth Brooks (1906-1994) sagði: „Þessi sameining er ekki rökræn, hún hunsar aug- ljóslega bæði vísindin og heilbrigða skynsemi, hún fellir saman það sem ekki á saman og sýnir þversagnir í lífi okkar.“ 7 Þau ljóð Steins sem eru byggð yfir þversagnir og íroníu skipta tugum. I Sjálfsmynd málar ljóðmælandinn mynd af sér eða sínu sanna sjálfi á vegg en enginn sér þá mynd því það er málað jafnharðan yfir hana. Myndir eru mál- aðar til hálfs, fólk skilur þann sem talar til hálfs en í fjölmörgum Ijóðum er ekki einu sinni þetta skilningsleysi því að það er ekkert líf. í ljóðinu Atlantis er siglt „ Áfram, áfram í auðn og nótt.“ og í Kvæðinu um veginn er „auðn og myrkur á allar hliðar og enginn vegur“ og í Skóhljóði er allt löngu dáið og þú vakir einn yfir líki heimsins. Þögnin togar þannig í ljóðið strax í annarri Ijóðabókinni Ljóðum frá 1937. I Ljóði án lags er brjóst ljóðmælandans fullt af söng en þó hann gráti og biðji og tjái allar sínar tilfinningar kemur hann ekki upp hljóði og eng- inn heyrir til hans. í Sulti hrópar ljóðmælandinn á miskunn en fólk gengur framhjá honum brosandi og heyrir ekki í honum. I Orðum ræðst svo orðið, sem enginn vill heyra, á viðfangið eitt haustkvöld og umlykur það: „Svo veistu það loks: Þú ert lokaður inni. Mitt vængjaða orð, sem þú vildir ei heyra, er vaxið utan um líf þitt og sleppir þér ekki.“ Formin leysast upp, eitthvað sem gæti afmarkað ljóðmælandann leysist UPP og hann veit ekki hvort hann er sá sem lifir eða hinn sem dó, hvort hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.