Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2009, Page 194

Andvari - 01.01.2009, Page 194
192 KRISTMUNDUR BJARNASON ANDVARI Sigbjörnsson, rithöfundur í Foam Lake, Kanada). Sumarið 1902 var hún vistráðin hjá Þóru og Páli, en fluttist um haustið til Vesturheims. Páll var þá að sögn Rannveigar, „mikið bilaður á sjón og heyrn.“ Hann var jafnan með dökkgrænt skyggni fyrir augum. Hjónin voru þá flutt upp á loftið í skólahús- inu og gat Páll staulast upp stigann.76 Verður nú stuðzt við frásögn Guðrúnar P. Helgadóttur, þar sem hún grípur ofan í minningar Rannveigar, er hún hrædd og kvíðin gengur fyrst á fund forstöðukonunnar: Frú Melsteð kom sjálf til dyra og var svo vinsamleg að með sjálfri mér var ég alveg undrandi, því mér hafði skilizt á fólki, að hún væri svo hörð. „Rannveig bætir því við, að viðmót hennar hafi verið „vingjarnlegt, kurteist og algjörlega skuggalaust“, og hún gleymi Þóru aldrei, þar sem hún mætti henni þarna í dyrunum.77 Þóra segir í lokaskýrslu sinni, að hún hafi verið kölluð vandlát og sumir sagt, að hún væri „ströng“, en allar hinar góðu stúlkur sínar hafi skilið, „að ég var vandlát sökum velferðar þeirra“. ... Einar H. Kvaran, sem kenndi við Kvennaskólann veturinn 1898-99, segir í grein um Þóru í Sunnanfara árið 1900, að skólastofnun hennar hafi mætt talsverðum andróðri í fyrstu, en nú séu allir komnir í skilning um, að Þóra hafi unnið hið þarfasta verk. Heyrzt hafi „nokkrar umkvartanir um það framan af, að hún væri of hörð.“ Telur Einar, að það sé gamla sagan, að íslendingar eigi örðugt með að sætta sig við aga. Síðan bætir hann við, að nú séu „allar slíkar umkvartanir undir lok liðnar“, ástsældir hennar meðal námsmeyja fari vaxandi, þær sýni henni meiri auðsveipni,6 gefi henni árlega gjafir og hún skrifist á við margar þeirra, eftir að þær séu farnar úr skólanum.78 Guðrún P. Helgadóttir rekur ýmsar sagnir um Þóru í afmælisriti Kvenna- skólans. Á áttræðisafmæli Þóru 18. desember 1903 flutti nágranni og vinur, Stein- grímur Thorsteinsson, „stofnanda og forstöðukonu Kvennaskólans í Reykjavík“ kvæði um „fagurt lífsverk“ hennar. Nærri má geta, að þessi virðingarvottur og hlýja kveðja hafi glatt hana, sem þurfti sífelldrar uppörvunar við.79 Þóra lét af skólastjórn árið 1906, en bar hag skólans fyrir brjósti sem áður og reyndi að vinna honum það gagn, sem hún mátti. Hún hlaut margs konar viðurkenningu um dagana. Árið 1906 sæmdi Friðrik VIII hana verðleika- medalíunni úr gulli. Það var fágætt heiðursmerki, og var hún eini íslend- ingurinn, sem hlaut það.80 Hinn 3. nóvember árið 1909 fengu þau hjón 6 Það er rangt, sem heyrzt hefur og sést á prenti (Stefán Einarsson: Skáldaþing, 185), að Þóra væri fyrirmynd Einars að frú Hardal í Sögum Rannveigar. Höfundur heyrði, þegar þetta barst í tal við Einar, sem var á Mælifelli sumarið 1933.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.