Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Blaðsíða 103
UM VINÁTTU OG BRÉFASKIPTI
85
En dráttur varð á útgáfu annars
þáttarins, og féll Magnúsi það
ftúður. Þegar svo saman fóru líkam-
le§ vanlíðan og nokkur vonbrigði
yfir þeim viðtökum, er honum
fundust sumir veita verkum hans,
gerðist hann þögull og þunglyndur.
Er ekki að sjá, að hann hafi skrifað
Stephani nema eitt bréf árið 1901
°g það snemma í janúar. Var því
ekki að undra, þótt Stephani væri
farið að lengja eftir bréfi í árs-
yrjun 1902, er hann sendi Magnúsi
eftirfarandi erindi (24. janúar):
Ertu veikur?
Ertu reiður?
Eða hvað?
Þrumi ég smeykur,
þagnarleiður.
Það er að.
Svar Magnúsar er nú ekki til
^arðveitt, en Stephan hefur skrifað
enum alllangt bréf 14. febrúar og
rilur þar í hann kjark. Hefur
agnús þá vaknað við, og lýsir
Qann 1 bréfi til Stephans 20. marz
e^sökum hinnar löngu þagnar, er
^eyndust, þegar til kom, fremur von-
rigði hvers konar en veikindi. í
frrefl Sinu hafði Stephan haldið því
*arn’ varla gæti verið öðru um
enna en efnaleysi, er Oddur
J°rnsson hafði dregið svo útgáf-
^ 9 3 ff- þætti Eiríks Hanssonar.
eflh- S^' 11311 elcki mundu telja
hu S6r’ kfa§nusi væri nokkur
^nnn að því, að senda Oddi línu,
£ e& held,“ segir Stephan, „að
k laki ekkert mark á, þó fjósa-
fjp . Vestur undir Klettafjöllum
n að hotta á hann.“
M
að^ varð þó úr fyrir áeggjan
nUsar, að Stephan hottaði á
Odd. Skýrir Stephan Magnúsi frá
því í bréfi til hans 13. apríl. í sama
bréfi segir Stephan, er hann reynir
að herða Magnús upp gegn ónær-
gætnum ritdómum:
Það var enginn ritdómari, þessi
„H“ í „Dagskrá“, og hann sagði
ekkert illt um þig. Hann sagðist
„sjá úr enskum bókmenntaheimi“,
en mér fannst eins og tröllunum
forðum, að það hefði mátt laga
hægra augað og hagræða vinstri
glyrnunni. Taktu þér aldrei ritdóma
nærri, ef þú mögulega getur. Þú
þarft þess ekki. „Bjarki“ gat þín til
góðs, „Aldamótin“ vingjarnlega,
„Nýja öldin“ jafnvel hlýlega, og er
ég þó hræddur um, að þú þykist
eiga þar úlfs von, sem þú sérð eyru
Jóns míns Ólafssonar. Hver ætli
annars hafi skap til þess að fara illa
með þig, lambið mitt, þegar til al-
vörunnar kemur?
Bréf Stephans til Odds Björns-
sonar virðist hafa hrifið, að minnsta
kosti komst skriður á útgáfuna
sumarið 1902. Sendi Magnús
Stephani eintak, og þakkar hann
fyrir það í bréfi til Magnúsar 22.
desember. Birti ég hér smákafla úr
bréfinu:
Ég las „Runka“ þinn með ánægju
og þakka þér kærlega fyrir hann.
Ég hefði þurft að lesa fyrri og seinni
hlutann saman, vel og dyggilega, og
liggja svo á þeirra meltu nokkra
daga, eins og hákarl, ef ég hefði átt
að gera honum full skil, en það
varð ekki í þetta sinn. Það, sem ég
segi því um hann og þig nú, er því
aðeins skyndihugsanir í miðjum
lestri, en ekki glöggt yfirlit.
„Eiríkur Hansson" er ævisaga þín