Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Blaðsíða 120
102
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
En öll hafa þau ummæli verið
mjög í anda drengilegra orða dr.
Guðmundar Finnbogasonar í rit-
dómi um Almanakið fyrir árin 1942
og 1943 (Skírnir 1943), sem bæði
bregða upp skilningsríkri mynd af
efni ritsins almennt og tilgangi þess
og lýsa samtímis rótgrónum vinar-
hug höfundar í garð íslendinga í
Vesturheimi:
„Almanak ólafs S. Thorgeirssonar
er orðið ein merkilegasta náma ís-
lenzkrar mannfræði síðari tíma. Það
hefir nú komið út nálega hálfa öld
og flutt að staðaldri greinar í safn
til landnámssögu íslendinga í Vest-
urheimi, auk fjölda greina um ein-
staka íslendinga við sérstök tæki-
færi. Það birtir árlega yfirlit yfir
helztu viðburði í lífi íslendinga vest-
an hafs, allt sem þeir gera sér til
sæmdar í skólum, opinberu lífi og
einkaframkvæmdum. Og það flytur
góða skrá yfir mannalát á hverju ári,
með glöggri grein á helztu ævi-
atriðum. Og auk þess margt bók-
menntalegt. Þarna er því saman-
komið í stuttu máli margt af því,
sem þarf til þess að gera sér grein
fyrir því, hvernig íslendingar hafa
reynzt vestan hafsins, og jafnframt
hefir þetta rit verið merkur þáttur í
viðleitni þeirra að halda þjóðernis-
vitundinni vakandi, með þeim
skyldum, er henni fylgja, og gert
sitt til að ekki verði sagt um íslend-
ingabyggðir:
Frumbyggðin sprettur upp
fortíðarlaus
og fóstruð af samtíðaröld.
Og framförin mikla og menningin
hér
við minningar ei hefir töf.
Landar vorir vestan hafs hafa lagt
rækt við minningarnar og vaxið a
því. Heill sé þeim fyrir það.“
Skiljanlega er það því af rnörgum
ástæðum fagnaðarefni útgefendum
Almanaksins og fyrrv. ritstjóra þess,
að tveir meginþættir þess halda
áfram að koma út hér í ritinu, svo
að segja má, að lífsþráður þess slitni
eigi með öllu, og vissulega á slíkt
lesmál vel heima í riti, sem helga
er þjóðræknismálum vorur.i og bók-
menntaiðju.
Helztu viðburðir
meðal íslendinga í Vesiurhelmi
— 1954 —
Jan. — Skólaráð Winnipegborgar
kaus Peter D. Curry (íslenzkur í
móðurætt) formann ráðsins fyrir
árið 1954.
Jan. — Gísli S. Borgford, verka-
mannaleiðtogi í Winnipeg, skipaður
umdæmisstjóri verkalýðssamtak-
anna “Canadian Congress of Labor ^
í Albertafylki með aðsetur 1
Edmonton.
Jan. — Hannes J. Pétursson verk-
ræðingur í Winnipeg skipaður um
æmisverkfræðingur (“Region^
’onstruction Engineer”) af Ha ^
jáns- og byggingarstofnunar lan
tjórnarinnar, og tekur starfssvse