Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Blaðsíða 121
helztu viðburðir
103
hans yfir sléttufylkin Manitoba og
Saskatchewan.
Jan. — Sigurður Sigmundsson,
flutningastjóri “British Columbia
Electric Company” í Vancouver, fór
til Rio de Janiero í Braziliu, til þess
hafa umsjón með skipulagningu
a járnbrautarrekstri fyrir “Brazilian
Traction Company.”
22,-—24. febr. — Þrítugasta og
fimmta ársþing Þjóðræknisfélagsins
haldið í Winnipeg við mjög góða
aðsókn. Dr. Valdimar J. Eylands var
endurkosinn forseti, og nokkru síðar
endurkaus stjórnarnefndin Gísla
°nsson, fyrrv. prentsmiðjustjóra í
Winnipeg, ritstjóra Tímariis fé-
i^gsins.
24. febr. — Dr. Stefán Einarsson,
Prófessor í norrænum fræðum við
°hns Hopkins University, Balti-
^iore, Maryland, og séra Einar
turlaugsson, prófastur á Patreks-
riði> kosnir heiðursfélagar Þjóð-
raeknisfélagsins.
febr. — Niels G. Johnson lög-
rasðingur, Bismarck, N. Dak., fyrrv.
omsmálaráðherra þar í ríkinu,
ipaður dómari í hæstarétti Norður
°akotaríkis.
marz — Miss Laura Einarsson,
st'U' runark°na í Winnipeg, tók við
féi°rn. nýrrar deildar hjúkrunar-
agsins “Victorian Order of
Urses” í Nanaimo, B.C.
fe^arZ ' E)r. Richard Beck, pró-
hácvV norrænum fræðum við ríkis-
Ur ? ann 1 Norður-Dakota, skipað-
Uýi 0rseti háskóladeildarinnar í
memvtu°S ^ornum málum og bók-
3rz ' Skáldkonan Laura Good-
man Salverson hlýtur $1000.00
skáldaverðlaun Ryerson Press út-
gáfufélagsins fyrir skáldsögu sína
“Immortal Rock”.
Marz — Thor Thorgrímsson, er
stundar framhaldsnám við háskól-
ann í Toronto, hlýtur $2000.00 náms-
styrk frá “Canadian Social Research
Council” til sagnfræðináms á Lun-
dúna háskóla (University of
London).
16. marz — Minnisvarði reistur á
gröf dr. Valtýs Guðmundssonar í
kirkj ugarðinum í Reykjavík að til-
hlutun hálfsystur hans frú Guð-
rúnar Skaptason í Winnipeg.
Marz — Fylkisstjórnin í Manitoba
felur Sir William Stephenson (ís-
lenzkrar ættar) á hendur að rann-
saka aðstæður til aukinnar iðn-
þróunnar innan fylkisins.
Marz — Dr. P. H. T. Thorlakson
kosinn formaður framkvæmda-
nefndar félagsskaparins “The Mani-
toba Medical Service.”
31. marz — Major William
Kristjánson, Winnipeg, sæmdur
heiðursmerki fyrir starf sitt í þágu
herdeildar (Contingent C. O. T. G.)
Manitobaháskóla.
Apríl — Kunngert, að Mennta-
málaráð íslands hafi veitt dr.
Tryggva J. Oleson, prófessor í sagn-
fræði við Manitobaháskóla, 3000
króna fjárupphæð til sagnfræðilegra
rannsókna.
Apríl — Sambandsstjórn Canada
skipar Victor B. Anderson, bæjar-
fulltrúa í Winnipeg, erindreka á al-
þjóðaþing verkamanna, sem haldið
verður í Genf í Svisslandi í júní-
mánuði.