Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Blaðsíða 130
112
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
8. júní — Paul Thorkelsson kosinn
í skólaráð Winnipegborgar við auka-
kosningu í 2. kjördeild borgarinnar.
Júní — Paul Harold Westdal,
skordýrafræðingur í þjónustu Land-
búnaðardeildar sambandsstjórnar-
innar, Brandon, Man. kosinn for-
seti Vestur-Manitobadeildar Land-
búnaðarstofnunarinnar í Canada
(“Western Manitoba Branch, Agri-
cultural Institute of Canada”) fyrir
árið 1955—’56.
Júní — Joseph T. Thorson, dóm-
stjóri í Ottawa, endurkosinn forseti
Alþjóðafélags lögfræðinga (“Inter-
national Congress of Jurists”) á árs-
fundi þeirra samtaka í Aþenuborg.
15.—17. júní — Aldarafmælis ís-
lenzka landnámsins í Utah minnst
með fjölþættu og tilkomumiklu há-
tíðahaldi, að viðstöddu fjölmenni,
meðal annars með mikilli skrúð-
göngu og með sögulegri sýningu, er
eitt hundrað manns tóku þátt í, sem
frú Hólmfríður Daníelson hafði
samið og sett á svið. Fulltrúi Banda-
ríkjastjórnar var Marselis Parsons
úr Utanríkisráðuneytinu. Pétur
Eggerz, sendiráðunautur í Wash-
ington, var fulltrúi ríkisstjórnar Is-
lands, og flutti bæði sérstaka
kveðju frá forseta íslands og af-
henti hátíðarnefndinni skrautritað
ávarp frá ríkisstjórninni. Prófessor
Finnbogi Guðmundsson flutti kveðj-
ur Þjóðræknisfélagsins. Á hátíðinni
afhenti Pétur sendiráðunautur enn-
fremur þeim John Y. Bearnson, for-
manni hátíðarnefndar, og frú Cate
Carter, systur hans, riddarakross
hinnar íslenzku Fálkaorðu, sem for-
seti íslands hafði sæmt þau í þakk-
arskyni fyrir starf þeirra í þágu ís-
lenzkra mála og varðveizlu íslenzkra
menningarerfða í Utahríki.
17. júní — Lýðveldisdagur £s-
lands haldinn hátíðlegur þann dag
eða næstu daga víða í byggðum og
borgum meðal íslendinga vestan
hafs.
17. júní — Forseti íslands sæmdi
dr. Valdimar J. Eylands stórriddara-
krossi hinnar íslenzku Fálkaorðu i
viðurkenningarskyni fyrir víðtæka
þátttöku hans og forustu í kirkju-
og þjóðræknismálum íslendinga 1
Vesturheimi.
Júní — Árni G. Eggertson, Q-p->
endurkosinn í framkvæmdarstjorn
Eimskipafélagsins á aðalfundi þeSS
í Reykjavík.
Júní — Komu þau Björgvin Guð-
mundsson tónskáld á Akureyri og
frú hans til Winnipeg til nokkurra
mánaða dvalar vestan hafs. Ferðu
ust þau víða um byggðir íslendinga>
og hélt tónskáldið margar söng
samkomur og sagði fréttir af íslan l>
jafnframt því og þau hjónin endur
nýjuðu forn kynni meðal lan a
sinna í Vesturheimi.
19. júní — Daniel John Simundson
:rá Seattle) lauk prófi á Stanfor
áskólanum í Californíu með h®®
gætiseinkunn, og hlaut menn
tigið “Bachelor of Arts.”
ann unnið mörg námsverðla^
g heiðursviðurkenningar. ^ a
tundar guðfræðinám á lúter
restaskólanum í Maywood, I
25.-30. - Sjötugasta og
rsþing Hins ev. lút. kirkju
slendinga haldið að Gimh, ^
. þinginu var minnst með inS.
átíðahaldi 70 ára afmælis ieiagí
'ulltrúi Sameinaða kirkjufe a&