Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1955, Blaðsíða 124
106
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Júní — Snemma 1 þeim mánuði
var Jakob F. Kristjánsson, Winni-
peg, umdæmisstjóri atvinnumála-
nefndarinnar “Unemployment In-
surance Commission” í fjórum
vesturfylkjum Canada, kosinn í
framkvæmdanefnd alþjóðafélagsins
“The International Association of
Personnel in Employment Security.”
10. júní — Thor Thors, sendiherra
fslands í Canada og Bandaríkjun-
um, afhenti Árna G. Eggertson, Q.C.,
Winnipeg, stórriddarakross Fálka-
orðunnar, sem forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, hafði stuttu áður
sæmt hann fyrir störf hans í þágu
Eimskipafélags íslands og vestur-
íslenzkra félagsmála.
12. júní — Grettir Eggertson,
rafurmagnsfræðingur í Winnipeg
kosinn í stjórnarnefnd Eimskipa-
félags íslands á ársfundi þess í
Reykjavík.
16. júní — Við sérstaka athöfn á
Bessastöðum afhenti prófessor
Richard Beck, er þá var í íslands-
og Norðurlandaför ásamt frú sinni,
forseta íslands brjóstmynd í eir af
Sveini Björnssyni forseta sem gjöf
frá fólki af íslenzkum stofni og
öðrum vinum íslands í Bandaríkj-
unum. Daginn eftir flutti dr. Beck
kveðjur Vestur-íslendinga á lýð-
veldishátíðinni í Reykjavík.
17. júní — Tíu ára afmælis ís-
lenzka lýðveldisins minnst með fjöl-
sóttum og virðulegum hátíðahöldum
víðsvegar vestan hafs, meðal annars
með sérstöku útvarpi yfir kerfi
CBW stöðvarinnar í Winnipeg. Thor
Thors sendiherra hélt ræðu og dr.
Valdimar J. Eylands flutti ávarp.
19.—20. júní — Haldið í Winnipeg
kirkjuþing “Western Canada Uni-
tarian Conference” {áður „Hið Sam-
einaða Kirkjufélag íslendinga'1)-
Séra Philip M. Pétursson endur-
kosinn forseti.
20. júní — Dr. Haraldur Sigmar,
fyrrv. forseti Lúterska Kirkjufélags-
ins, er var í Norðurálfuför ásamt
frú sinni, var fulltrúi kirkjufélags
síns við biskupsvígslu dr. Ásmundar
Guðmundssonar í Dómkirkjunni i
Reykjavík og síðar á Prestastefnu
íslands. Dr. R. Beck fór með hlið-
stætt fulltrúastarf af hálfu Þjóð-
ræknisfélagsins og Sameinaða
Kirkj uf élagsins.
20. júní — Séra B. Theodore
Sigurðsson settur inn í embætti
sem prestur Mountainprestakalls at
dr. Valdimar J. Eylands, forseta
Lúterska Kirkjufélagsins.
22. júní — Lagði dr. Áskell Löve,
prófessor í grasafræði við Manitoba-
háskóla, af stað til Parísar til ÞeSf
að flytja erindi og stjórna fundi a
alþjóðaþingi grasafræðinga.
Júní — Frú Thora Matthíasson fra
Los Angeles, Calif., er var í íslands
för, ásamt föður sínum, Gunnari
Matthíassyni, og manni sínum, he
söngsamkomu í Reykjavík við prý 1
legar viðtökur.
27. júní — Fimmtíu ára presg'
skaparafmælis séra Kristins
Ólafssonar, fyrrv. forseta Lúters
kirkjufélagsins, minnst virðu e
við sérstaka guðsþjónustu í kir,
hans í Sharon, Wisconsin. e
Guttormur Guttormsson, vara °rS
kirkjufélagsins, var fulltrúi þess
hátíðahaldið.
30. júní - Sjötugasta
lins Evang.-Lúterska K
í Vesturheim >