Hugur - 01.01.2007, Page 137

Hugur - 01.01.2007, Page 137
Ótti á tímum öryggis 135 stjórar og yfir þeim deildarstjórar, allt til forstjórans sem situr á tindi pýramídans. Ogunin og eftirlitið virkar frá toppi pýramídans og niður; notast er við afmarlcan- ir tíma, rýma og hlutverka.11 Þessar yfir-einingar mynda síðan ýmiss konar þver- bönd við aðrar yfir-einingar eins og stofnanir sem skipuleggja aukningu fram- leiðslugetunnar í samræmi við rökvísi lífpólitíkurinnar. I tilfelli verksmiðjunnar gerist þetta til að mynda í gegnum stofnun vinnueftirlits (sem fyrirbyggja á slys og sjúkdóma), sem aftur tengist ögunarkerfi skólanna (líkaminn leið-réttur, þar er setið rétt og haldið rétt á penna o.s.frv.), en hlutverk vinnueftirlitsins er að ákvarða hver sé rétt vinnustaða líkamans (hæð færibandsins o.s.frv.). I tilfelli fjölskyld- unnar tengist hún yfir-einingum stofnana heilbrigðis- og barnaverndar sem fylgj- ast með því að allt sé í röð og reglu á heimilinu og hreinlætis sé gætt. Það sem einkennir tengsl eininganna er að ögunin og þar með valdið kemur frá annarri og utanaðkomandi einingu, en þetta einkenni er um leið takmörk þessa valds, afmörkun er takmörkum Ögunarsamfélagið batt einstaklingana inn í stofnanir, en því mistókst að sporðrenna þeim algjörlega inn í taktbundin slög framleiðslunnar, venjur hennar jafnt sem félagsmótun; það náði ekki því marki að síast algjörlega inn í meðvitund og líkama einstaklinganna, það náði ekki því marki að meðhöndla og skipuleggja athafnir þeirra í heild sinni. I ögunarsam- félaginu má því segja að samband valds og einstaklings hafi verið statískt: innrás ögunarvaldsins var í samræmi við andspyrnu einstaldingsins.12 Vandkvæði ögunarvaldsins er að einstaldingurinn upplifir það (að minnsta kosti á köflum) sem ofbeldi eða þvingun, sem framandi vald. Astæðan er ef til vill sú að í kapítalisma nútímans fylgdi framleiðslu afmarkaðra eininga (óhjákvæmilega) hugmyndafræðileg framleiðsla á einstaklingnum sem sjálfráða og frjálsri sjálfs- veru-einingu sem stangast á við þvingun agans, einfaldlega vegna þess að hann er hinum „frjálsu" sjálfsverum framandi.13 Ögunarvaldið er að einhverju leyti of sýnilegt ogframandi,14 Það beinlínis hvetur til uppreisnar, eða opnar að minnsta 11 Fullkomnun þessarar gerðar eftirlits er alsjáin (panopticon): Sökum þess eins að mögulega sé fylgst með lútandi einingum gera þær það sem til er af þeim ædast. Sjá Michel Foucault, Surveiller et punir: La naissance de la prison, París 1975 og íslenska þýðingu Bjöms Þorsteinssonar á hluta þeirrar bókar (kaflarnir „Líkami hinna dæmdu“ og „Alsæishyggjan“) í Michel Foucault, Alsæi, vald ogpekking, Reykjavík 2005. 12 Antonio Negri og Michael Hardt, „Lífpólitísk framleiðsla - ásamt formála að Veldinu, þýð. Viðar Þorsteins- son, Hugur, 15. ár, 2003, s. 150-173, hér s. 157. x3 Sbr. upplýsinguna, t.a.m. Jean-Jacques Rousseau. I Samfélagssáttmálanum (Du contrat social, 1762) er það verkefni Rousseaus að réttlæta yfirvald (ríkisvald) án þess að einstaklingarnir afsali sér sjálfræði sínu eins og Thomas Hobbes taldi nauðsynlegt. Sjálfræði og frelsi einstaklinganna sé svo samofið eðli og mennsku þeirra að ekkert geti réttlætt skerðingu þeirra. Þess vegna er verkefni hans (sem mistekst að vísu) fólgið í því að sýna fram á hvernig yfirvald geti verið samsamað sjálfsvaldi eða sjálfræði í gegnum lýðræðið. Sjá Jean-Jacques Rousseau, Samfélagssáttmálinn, þýð. Már Jónsson og Björn Þorsteinsson, Reykjavík 2004. x4 Þetta kann að koma þeim sem þekkja til alsjár Foucaults á óvart, þar sem vald alsjárinnar skipuleggur sig sem valdaafstæður inni í líkömum einstaklinganna og birtist því sem ósjálfráð og ómeðvituð hegðun. Vald alsjárinnar er því vissulega illsýnilegt. Ég styðst hér hins vegar við kenningar Negris og Hardts sem gera ráð fyrir að ögunarvald alsjárinnar hafi ekki náð að samsama einstaklingana valdinu. Vald alsjárinnar kemur alltaf að einhveiju leyti með sýnilegum hætti utanfrá (frá turninum í miðju fangelsisins, „lýðræðislegum“ eftirlits- stofnunum o.s.frv.) og er að því marki framandi. Hin fullkomna samsömun valdsins og einstaklinganna verður fyrst þegar langanir, þrár og sköpunarkraftur þeirra samsama sig rökvísi valdsins. Það gerist með tilkomu stakl- ingsins í eftirnútímanum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.