Hugur - 01.01.2007, Page 168

Hugur - 01.01.2007, Page 168
166 Davíð Kristinsson Nýstárlegur samanburður af þessu tagi getur verið frjór.36 Sé áherslan hins vegar einkanlega á það sem virðist líkt hjá þessum hugsuðum á kostnað þess sem er frábrugðið er hætt við því að það sem er á margan hátt ólíkt renni saman í eitt. Dæmi um bernskan samanburð af þessu tagi er ítarlegur samanburður heimspek- ingsins Georges J. Stack á Nietzsche og Emerson.37 Hann heldur því fram að Nietzsche sé þýskt afrit af úrvalshyggju Emersons.38 A sama hátt virðist Róbert vera þeirrar skoðunar að Nietzsche sé einhvers konar þýsk útgáfa af Emerson, en þó á andstæðri forsendu en Stack: Róbert álítur hvorugan þeirra vera úrvals- hyggjusinna. En hvor afstaðan er nær lagi? Mér virðist hvorugur hafa á réttu að standa, nema að hálfu leyti. Þegar á heildina er litið var Nietzsche, gagnstætt Emerson ogThoreau, andstæðingur jafnréttis og lýðræðis. Hann var lítt hrifinn af þeirri staðreynd að „lýðræðinu vex fiskur um hrygg (sem og undirrót þess, blóð- blöndun húsbænda og þræla, færist í aukana)"39 og áleit nauðsynlegt að koma á nýrri tegund höfðingjaveldis. I afneitun sinni á úrvalshyggjutúlkunum á Nietzsche fylgir Róbert leiðbein- andanum við doktorsritgerð sína, James Conant, að málum. Conant færir rök gegn því að Nietzsche sé úrvalshyggjusinni og segir slíka túlkun byggja á mislestri á Otímabœrum hugleiðingum Nietzsches, nánar tiltekið á þriðju hugleiðingunni, Schopenhauer sem uppalandi.40 I doktorsritgerð sinni styðst Róbert í undirkaflan- um „Nietzsche’s reputation as an elitist" við þá rökfærslu Conants „að úrvals- hyggjutúlkunin byggist á tilvísunum úr Nietzsche sem teknar eru úr samhengi; hann færir ennfremur rök fyrir því að úrvalshyggjutúlkunin afskræmi bæði inni- hald og markmið heimspekiskrifa Nietzsches. Mér virðist Conant hafa gert úr- valshyggjutúlkanir á Nietzsche afar vafasamar og jafnvel hrakið þær.“411 athyglis- verðri grein sinni tekst Conant þó ekki hið ógerlega, þ.e. að hrekja þá ótvíræðu úrvalshyggju sem einkennir heildarverk Nietzsches, þótt hann reyni það með þeirri innantómu nákvæmni, eins og ég kýs að kalla mælskulist af þessu tagi, sem fáguð textatúlkun hans framkallar. Þannig kann enska þýðingin á Exemplar sem 36 Áhrifa þessa samanburðar gætir í nokkrum B.A.-ritgerðum við heimspckiskor Háskóla íslands sem flestar voru skrifaðar undir leiðsögn Róberts: Flóki Guðmundsson, Ótíkir skoðanabrœður. Hugmyndir John Stuart Mill og Friedrichs Nietzsche um einstaklingseðlið, 2003; Viðar Þorsteinsson, Frjáls maður eða frjálslyndur? Um einstakling og hugmyndafrteði í Þjóðníðingi lbsens með hliðsjón a/'Frelsinu eftir Mill, 2003; Aslaug Skúladóttir, Ljóðskáld eigin lífs. Lífsspeki í verkum Ihoreaus og Nietzsches, 2002; Snorri Þór Tryggvason, Haltu mér - slepptu mér svo. Hugmyndir Nietzsches og Emersons um fyrirmyndir, 2002; Skúli Thorarensen, Fyrirmyndir Nietzsche. Um áhrifEmerson og Schopenhauer á Nietzsche, 1999. 37 George J. Stack, Nietzsche and Emerson. An Elective Affinity, Athens: Ohio University Press, 1992.1 útlistun Stacks verður Nietzsche allsherjar déjá-vu frá sjónarhóli þess sem lesið hefur Emerson. Máli sínu til stuðnings vísar Stack oftast til örfárra orða innan gæsalappa án þess að huga nánar að samhengi þeirra. Þetta gerir honum kleift að leggja ólíkustu hluti að jöfnu og setja fram langsóttar staðhæfingar á borð við þá að kenning Nietzsches um viljann til valds eigi uppsprettu sína hjá Emerson. 38 Nánar til tekið heldur Stack (s. 287) því fram að báðir þróist með árunum í þessa átt, þ.e. frá því að vcra frelsarar allra manna (eins og Róbert heldur fram) yfir í úrvalshyggju (sem Róbert vill ekki kannast við): „Both begin as teachers who seek to lead all human beings out of the herd and end as elitists". Enda þótt Schopenhauer sem uppalandi hins þrítuga Nietzsches einkennist ekki í jafn sterkum mæli af úrvalshyggju og síðari verkin er hún þó þegar til staðar í íýrsta riti Nietzsches. Og þótt sýna megi fram á einhveija þróun í afstöðu Emersons og Nietzsches er hún því ekki jafn einföld og hliðstæð og Stack heldur fram. 39 Nietzsche, Handan góðs og ills, §261. 40 Sjájames Conant,„Nietzsche’s Perfectionism. A Reading of Schopenhaueras Educatoru,Nietzsches Postmoralism, ritstj. Richard Schacht, New York: Cambridge University Press, 2000, s. 181-257. 41 Róbert H. Haraldsson, 7he Problem of Mitleid and the Morality of Mitleid, s. 48.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.