Hugur - 01.06.2010, Side 202

Hugur - 01.06.2010, Side 202
200 Atli Harðarson hliðarkenningar sem skýra hvernig vanþekking er möguleg. Það ætti því kannski að kalla þá skoðun að fyrirbæri geti ekki haft óþekkta eiginleika einfalda hug- hyggju, fremur en að eigna hana öllum hughyggjumönnum án fyrirvara. En hvað sem því líður á hluthyggjumaður mun auðveldara með það en hughyggjumaður að skýra hvernig mönnum getur skjátlast um efni eins og sínar eigin geðshrær- ingar. Sé einhver í vafa um hvort það sem hrærist í hug hans er ótti eða virðing, afbrýðisemi eða skömm þá getur hluthyggjumaður sagt að hann skorti þekkingu á einhverjum raunveruleika en hughyggjumaður mundi fremur líta á það sem verkefni að skapa sér sannleika um þetta efni eða móta geðshræringarnar svo þær verði eitthvað ákveðið. Spurningar um hvort hægt sé að gera greinarmun á hughyggju og hluthyggju um sjálfið og hvor kenningin er réttari, ef á annað borð er hægt að greina á milli þeirra, snúast líklega, þegar öllu er á botninn hvolft, einkum um hvernig rétt sé að gera grein fyrir vanþekkingu manna um sitt eigið sjálf. * Ef til vill skilja flestir spurningu um hvort sjálfið sé til í raun og veru sem spurn- ingu um hvort einhvers konar hughyggja sé rétt kenning um tilveru þess, enda er sú hugsun áleitin að hughyggja um fyrirbæri feli í sér að þau séu ekki fyllilega raunveruleg. En spurningin þarf ekki að hafa þessa merkingu. Við getum h'ka spurt hvort sjálfið sé yfirleitt til með nokkrum hætti eða hvort hughyggjumenn og hluthyggjumenn ættu að sameinast um að telja allt tal þar um hrein og klár ósannindi. Eru orðasambönd eins og inn við beinið og innst inni yfirleitt notuð til að tjá einhvern sannleika? Eg sé tvenns konar ástæður til að efast um það. Onnur er að tal um hvernig menn eru innst inni er oft innantómt kurteisishjal sem haft er uppi til að forð- ast árekstra í samskiptum. Þurfi að kvarta undan framkomu manns er því gjarna hnýtt aftan við að hann sé samt vænsti maður inn við beinið. Með þessu verður ásökunin mildari og minni líkur á að af henni hljótist alvarlegt ósætti. Þörfin til að taka broddinn úr klögumálum kann að skýra útbreidda notkun orðsambanda eins og innst inni og inn við beinið. Þessi skýring gefúr ekki tilefni til að ætla að orðalagið vísi á einhvern greinarmun sem er til í veruleikanum. Hin ástæðan til að efast um að til sé sannleikur um hvernig menn eru inn við beinið er að tal þar um er alloft notað til að viðhalda blekkingum fremur en að auka skilning og þekkingu. Ef við viljum telja einhvern góðan lítum við svo á að einungis það góða sem hann gerir vitni um hvernig hann er inn við beinið. Sé hins vegar bent á að einhver sem okkur er illa við geri ýmislegt gott þá teljum við þetta bara sýndarmennsku hjá honum því hann sé slæmur inn við beinið. Grein- armunurinn hjálpar okkur þannig að komast hjá því að viðurkenna að óvinir okk- ar eigi ýmislegt gott til og að vinir okkar séu ekki eins frábærir og við viljum vera láta - hann er með öðrum orðum notaður til að einfalda litróf mannh'fsins, jafnvel til að sjá það allt í svörtu og hvítu. Þessar tvenns konar ástæður til að efast um að til sé sannleikur um hvernig
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.